Takmörkuð ástæða til bjartsýni um loðnuveiði
Heildarmagn fullorðinnar loðnu, sem er nú á ferðinni, virðist minna heldur en í haust þegar ákveðið var að gefa ekki út veiðikvóta. Leitarleiðangur stendur enn yfir en þykir ekki gefa tilefni til bjartsýni.Fjögur skip hafa tekið þátt í leiðangrinum undanfarna viku. Polar Ammassak, skip grænlensks hlutdeildarfélags Síldarvinnslunnar og Barði NK fóru fyrst af stað. Þau sigldu frá Neskaupstað og byrjuðu að leita norður af Langanesi og þaðan austur fyrir.
Polar kom til hafnar í nótt og Barði er á leiðinni. Það voru þau sem helst fundu loðnu í leiðangrinum, þéttleiki fullorðinnar loðnu var mestur beint austur af landinu.
Heimaey fór í byrjun vikunnar af stað frá Þórshöfn. Hún hefur lokið sínum leiðangri en skipið leitaði úti fyrir landi ásamt Barða, sem fór til aðstoðar þar sem veður tafði brottför Heimaeyjar. Nánast ekkert sást af loðnu á þeirra slóðum.
Ferð hafrannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar tafðist vegna veðurs en það hefur leitað úti fyrir Vestfjörðum. Það lýkur væntanlega leit um helgina. Skipið fann loðnu en ekki þétta norður af Ströndum.
Þótt leiðangrinum sé ekki lokið sendi Hafrannsóknastofnun frá sér tilkynningu í dag um bráðabirgðaniðurstöðu. Heildarmagn fullorðinnar loðnu, sem myndar veiðistofn vertíðarinnar, er aðeins um tveir þriðju þess sem mældist í september 2024. Því eru engar forsendur enn til að gefa út kvóta.
Gert er ráð fyrir að niðurstöður og samantekt alls leiðangursins gæt legið fyrir öðru hvoru megin við næstu helgi. Ákvarðanir um frekari mælingar liggja ekki fyrir enn sem komið er.