Þjóðverjar horfa til orkuvinnslu á Finnafjarðarsvæðinu
Yfirvöld í Bremen í Þýskalandi renna hýru auga til vindorkuvinnslu í nágrenni Finnafjarðar og telja hana geta átt þátt í orkuskiptum sínum. Samstarfsyfirlýsing við sveitarfélög á svæðinu var endurnýjuð nýverið.Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu sem Bremenports, hafnasamlag Bremen, sendi frá sér í gær. Hafnasamlagið hefur undanfarin ár unnið að áformum um stórskipahöfn í Finnafirði, í samvinnu við Langanesbyggð, Vopnafjarðarhrepp og fleiri aðila.
Tilefni tilkynningarinnar er nýafstaðin þriggja daga heimsókn Dr. Claudia Schilling, ráðherra vísinda og hafna í Bremen, til Íslands. Með í heimsókninni voru Robert Howe, framkvæmdastjóri Bremenports, Dr. og dr. Klaus Maier frá vindorkufyrirtækinu WPD. Ferðin var undirbúin af þýska sendiherranum á Íslandi.
Í tilkynningunni kemur fram að Íslendingar séu líkt og Þjóðverjar að skoða hvernig hægt sé að skipta út jarðefnaeldsneyti fyrir betri orkugjafa. Íslendingar séu framarlega á sviði orkumála með vatnsafls- og jarðhitavirkjunum en enn séu aðeins tvær vindmyllur í landinu. Það sé að breytast.
Haft er eftir Schilling að hún geri sér grein fyrir að hérlendis séu svæði sem ekki verið hróflað við en einnig svæði á landi þar sem skilyrði séu hagstæð. Þannig sé staðan í nágrenni Finnafjarðar þar sem vindurinn sé slíkur að sambærileg skilyrði finnist vart á landi heldur hafi úti og verið sé að skoða hugmyndir um þrjú stór vindorkuver, hvert með 80 vindmyllum.
Tekið er fram að þótt áformin í Finnafirði hafi til þessa fyrst og fremst snúist um umskipunarhöfn hafi önnur tækifæri einnig verið höfð í huga. „Grænt rafmagn, framleitt í landi sem einnig er lýðræðisríki, er kjörin lausn fyrir orkuskipti Þýskalands. Þar munu hafnirnar skipta lykilmáli,“ segir Howe.
Um stöðuna í verkefninu segir að horft sé til allt að 1.200 hektara svæði í firðinum sem að mestu sé óraskað. Viðræður um kaup á landinu standi yfir og að samkomulag hafi verið endurnýjað með sveitarfélögin sem veiti Bremenports einkarétt á svæðinu til ársins 2060. Þar segir að framkvæmdir gætu hafist á Finnafjarðarsvæðinu seinni hluta þessa áratugar.
„Finnafjarðarverkefnið er spennandi og metnaðarfullt langtímaverkefni. Það vinnst skref fyrir skref. Þessi ferð sýndi að íslenska ríkisstjórnin og sveitarfélögin á svæðinu treysta á náið samstarf við Bremen,“ segir Schilling.