Þórarinn Ingi sækist eftir öðru sætinu
Þórarinn Ingi Pétursson, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi, segist gefa kost á sér til áframhaldandi þingsetu. Hann segir að innan flokksins hafi ekki komið annað til greina en sitja áfram í þeirri ríkisstjórn sem starfar þar til ný tekur við.Í samtölum við Austurfrétt og Vikublaðið í dag staðfesti Þórarinn Ingi að hann hefði hug á öðru sæti lista Framsóknarflokksins.
Hann skipaði þriðja sætið á lista Framsóknarflokksins í kosningunum 2021 en bauð sig fram í annað sætið þá líka í forvali flokksfélaga. Líneik Anna Sævarsdóttir, þingmaður frá Fáskrúðsfirði, endaði þá í örðu sætinu og skipaði það í kosningunum en hún gaf það út í dag að hún ætli að hætta á Alþingi.
Ríkisstjórnarskipið strandað
Kosið verður 30. nóvember í kjölfar þess að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins, með forsætisráðherrann Bjarna Benediktsson í broddi fylkingar, ákvað að slíta ríkisstjórnarsamstarfinu við Framsókn og VG.
„Fyrst þegar ég hlustaði á þetta þá kom ákvörðunin á óvart. En þegar ég fór að hugsa til baka og velta stöðunni fyrir mér þá var í sjálfu sér ekki annað að gera. Þessu skipi hafði verið siglt í skap. Þetta kom mér samt á óvart því ég hélt við gætum unnið áfram.“
Ráðherrar VG ákváðu að taka ekki sæti í starfsstjórn undir forsæti Bjarna, sem situr þar til ný hefur verið mynduð. Þórarinn segir það ekki hafa verið inni í myndinni hjá Framsókn. „Það kom ekki annað til greina en við sigldum áfram og tækjum þátt í starfsstjórninni þessar vikur sem eftir eru. Við tókum á okkur þetta verkefni sem var að sitja í ríkisstjórn og því fylgir ábyrgð sem við hlaupumst ekki frá þótt boðað sé til kosninga.“
Kosningabarátta sem hentar sauðfjárbóndanum
Kannanir hafa sýnt þó nokkurt fylgistap hjá Framsóknarflokknum þótt staða hans í Norðausturkjördæmi sé sterkari en víða annars staðar. „Ég tel stöðuna í kjördæminu nokkuð góða. Við þurfum að vinna okkar vinnu eins og við höfum til þessa gert í kosningabaráttu. Við reynum að vinna vel og ná til kjósenda. Þetta er spennandi verkefni sem ég óttast ekki.
Við göngum í þetta verkefni með bros á vör. Við þingmennirnir stöndum saman í þessu og ég heyri áhuga að heiman til að koma í slaginn með okkur. Það er allt komið af stað í félögunum í kjördæminu.“
Þórarinn er einnig sauðfjárbóndi í Grýtubakkahreppi og hann segir tímasetningu kosninganna ágæta. „Það var verið að grínast með það í dag að þetta hefði verið gert fyrir bóndann á þinginu og það væri vonlaust að standa í kosningabaráttu á sauðburði.“
Aðspurður um næstu ríkisstjórn segir hann að ekki sé hægt að ræða hana fyrr en úrslit kosninganna liggi fyrir. „Ég held það sé best að segja eins og yfirleitt – að menn gangi óbundnir til kosninga. Síðan verðum við að lúta dómi þjóðarinnar. Eins og sakir standa held ég að ómögulegt sé að spá um hvernig ríkisstjórnin muni líta út – nema ég vil að sjálfsögðu að Framsóknarflokkurinn verði í henni.“