Þriggja bíla árekstur á Fagradal
Þrír bílar skullu saman á veginum utan í Grænafelli, á leiðinni frá Reyðarfirði upp á Fagradal, um kvöldmatarleytið í gær. Fjögur önnur óhöpp urðu í vetrarfærð á Austurlandi í gær.Fimm manns voru í bílunum þremur og voru þrír einstaklingar fluttir með áverka á sjúkrahúsið í Neskaupstað.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu mun slysið hafa orðið með þeim hætti að keyrt var aftan á húsbíl sem var að athafna sig á veginum. Þriðji bíllinn keyrði síðan á húsbílinn eftir að fyrri áreksturinn varð. Snjór og hálka var á veginum og nokkurt kóf á köflum.
Fjögur önnur óhöpp eru skráð í dagbók lögreglunnar á Austurlandi. Tvö urðu í Skriðdal, annars vegar við vegamótin við Úlfsstaði þar sem bíll rann út af veginum í hálku, hins vegar við brúna yfir Gilsá. Þá fór einn bíll út af í Eskifirði, gegnt bænum. Engin slys urðu á fólki í þessum óhöppum. Í flestum tilfellum mun hafa verið um að ræða vegfarendur óvana íslenskum vetraraðstæðum.
Þessu til viðbótar fór flutningabíll út af á Norðurbrún í Fjarðarheiði. Reynt verður að ná honum aftur upp á veginn um hádegi í dag. Óvíst er hve langan tíma það tekur en stefnt er að því að aðgerðinni verði lokið fyrir myrkur. Vegna þessa má búast við að tafir verði á umferð yfir Fjarðarheiði í dag, vegurinn lokast mögulega um tíma en reynt verður að hleypa umferð framhjá eins og kostur er á.
Á Facebook-síðu lögreglunnar á Austurlandi kemur fram að henni hafi í gær borist nokkrar fyrirspurnir um nagladekk, en samkvæmt lögum má ekki nota þau fyrr en 1. nóvember. Lögreglan á Austurlandi sektar ekki fyrir notkun nagladekkja enda aðstæður þannig að þörf er á þeim.