Þrír umsækjendur um stöðu skólastjóra á Egilsstöðum
Þrír umsækjendur eru um stöðu skólastjóra Egilsstaðaskóla. Umsóknarfrestur um afleysingu í stöðu skólastjóra á Djúpavogi var framlengd.Báðar stöður voru upphaflega auglýstar með umsóknarfrest fimmtudaginn 19. mars. Á Djúpavogi er um að ræða afleysingu í eitt ár. Ákveðið var að framlengja þann umsóknarfrest þar til í dag.
Um stöðuna á Egilsstöðum bárust fjórar umsóknir. Ein þeirra var dregin til baka.
Þau sem sóttu um starfið eru:
Dagbjört Kristinsdóttir, aðstoðarskólastjóri, Egilsstöðum
Guðlaug Erlendsdóttir, aðstoðarskólastjóri, Grindavík
Viðar Jónsson, skólastjóri, Fáskrúðsfirði