Þrýst á um að Fjarðarheiðargöng verði sett í forgang
Sveitarstjórnir bæði Seyðisfjarðar og Fljótsdalshéraðs leggja áherslu á að tryggt verði fjármagn við endurskoðun á samgönguáætlun í haust þannig að sem fyrst verði hægt að ráðast í hönnun Fjarðarheiðarganga.Bæjarráð Fljótsdalshérað og bæjarstjórn Seyðisfjarðar ályktuðu nýverið um gangaframkvæmdir hvor í sínu lagi auk þess sem bæjarráð staðanna nýttu sameiginlegan fund sinn til að senda frá sér ályktun um málið.
Í þeirri ályktun er því fagnað að niðurstaða starfshóps samgönguráðherra um legu og fyrirkomulag framkvæmda við næstu jarðgöng á Austurlandi liggur fyrir. Niðurstaðan var kynnt um miðjan ágúst en þar er lagt til að byrjað verði á Fjarðarheiðargöngum og síðan haldið áfram til Mjóafjarðar og Norðfjarðar.
Í ályktuninni segir að niðurstaðan sé í fullu samræmi við áherslur sveitarfélaganna á Austurlandi sem ítrekaðar hafi verið í ályktunum aðalfunda Samtaka sveitarfélaga á Austurlandi.
Sveitarfélögin vænta þess að við afgreiðslu samgönguáætlunar í haust verði tryggt fjármagn til að hefjast handa við hönnun ganganna strax á næsta ári.
Sami tónn er sleginn í bókun bæjarráðs Fljótsdalshéraðs en í henni er bent á að niðurstaða skýrslunnar byggi meðal annars á úttektum fagaðila þar sem horft hafi verið til jarðfræði, veðurfars og samfélagslegra þátta. Bæjarráðið væntir þess að verði fjármagn tryggt til hönnunarinnar verði hægt að hefjast handa við Fjarðarheiðargöng á fyrsta tímabili samgönguáætlunar og hin göngin tvö í beinu framhaldi.
Í bókun bæjarstjórn Seyðisfjarðarkaupstaðar segir að ljóst sé að hvorki Seyðisfjörður né Austurland allt, geti lengur beðið eftir samgöngubótum sem hafi veruleg áhrif á atvinnulíf og byggðaþróun, líkt og hringtenging með jarðgöngum myndi gera. Því er skorað á samgönguráðherra og Alþingi að setja Fjarðarheiðargöng í forgang við endurskoðun samgönguáætlunar í haust þannig að hægt verði að halda áfram við undirbúning ganganna árið 2020.