Tilboð í lokaáfanga stækkunar Dalborgar opnuð í dag
Tilboð í þriðja og síðasta áfangann við stækkun leikskólans Dalborgar á Eskifirði verða opnuð eftir hádegi í dag.Það var Launafl sem byggði 410 fermetra viðbygginguna en framkvæmdir við hana hófust sumarið 2022.
Fyrir þremur vikum var auglýst útboð í lokaáfanga framkvæmdanna sem fela í sér lagnir, rafkerfi, frágang innanhúss, innréttingar og búnað. Skilafrestur tilboða er til klukkan 14:00 í dag og verða tilboð opnuð klukkustund síðar.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdum verði að fullu lokið þann 30. september næstkomandi.