Tour de Ormurinn: Hjólreiðakeppni umhverfis Lagarfljótið
UÍA, í samstarfi við ferðaþjónustufyrirtækið Austurför og með stuðningi Fljótsdalshéraðs og Fljótsdalshrepps, stendur fyrir hjólreiðakeppninni Tour de Ormurinn sunnudaginn 12. ágúst. Boðið verður upp á 68 og 103 km leiðir.
Keppendur verða ræstir úr Hallormsstaðarskógi klukkan 9:00 að morgni og hjólað verður þaðan út í Egilsstaði, norður yfir Fljót, upp Fellin og inn í Fljótsdal. Þar velja menn um lengri eða styttri hring en endamarkið verður í Hallormsstaðarskógi.
Umhverfis Orminn langa sem er 68 km hringur en þá er farið yfir nýjustu brúna yfir Jökulsá í Fljótsdal, neðan við Hjarðarból (utan við Hengifoss). Fyrstu tæplega 40 km eru á bundnu slitlagi, síðan tekur við um 20 km malarvegur og loks endað á klæðningu.
Þessi vegalengd verður bæði í boði fyrir einstaklinga eða lið. Í liðakeppni keppa þrír saman í liði og er hringnum þá skipt í þrjá leggi um 26 km, um 24 km og um 20 km.
Hörkutólahringurinn sem er 103 km hringur, farin sama leið og í styttri hringnum, þar til kemur að ,,nýju” brúnni yfir Jökulsá í Fljótsdal. Þá er haldið áfram inn Norðurdal og farið yfir brúna yfir Jökulsá í Fljótsdal milli Egilsstaða og Þuríðarstaða, (9 km kafli á grófum malarvegi) og haldið áleiðis út Fljótsdal og út í Hallormsstaðaskóg (um 8 km á malarvegi og svo bundið slitlag síðustu 5 km). Eingöngu er boðið uppá einstaklingskeppni í þessari vegalengd.
Nánari upplýsingar veitir skrifstofa UÍA í síma 4711353 eða í gegnum tölvupóst This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.. Hægt er að fylgjast með helstu fréttum af keppninni á Facebook-síðu hennar.