Tvær sóttu um skólastjórastöðu á Eskifirði
Tveir umsækjendur eru um stöðu skólastjóra á Eskifirði sem er laus frá upphafi næsta skólaárs. Umsóknarfrestur í tveimur öðrum austfirskum grunnskólum hefur verið framlengdur.Það eru Sigrún Traustadóttir, umsjónarkennari og Ásta Stefanía Svavarsdóttir, aðstoðarskólastjóri sem sækja um en báðar starfa við skólann í dag.
Umsóknarfrestur um tvær aðrar skólastjórastöður rann út í byrjun mánaðarins. Enginn sótti um stöðu skólastjóra Fellaskóla og verður sú staða auglýst aftur með nýjum umsóknarfresti. Þá hefur umsóknarfrestur um stöðu skólastjóra á Djúpavogi verið framlengdur til 20. apríl.