Breiðdælingar fengu jólapóstinn 9. janúar

Ekki tókst að bera út póst til íbúa í Breiðdal frá 17. desember til 9. janúar á þessu ári. Íbúar segja fyrirkomulag póstþjónustunnar, sem breyttist á síðasta ári með lokunum pósthússins á Breiðdalsvík, vera óraunhæft. Íslandspóstur heitir því að fyrirkomulagið verði endurskoðað.

Íbúar í bæði Norðurdal og Suðurbyggð í Breiðdal fengu síðasta póstinn til sín þann 17. desember síðastliðinn. Næst barst þeim póstur fimmtudaginn 9. janúar. Samkvæmt áætlun á að bera út póst í sveitinni á þriðjudögum og fimmtudögum.

Frídagar spila inn í á þessu tímabili, þess vegna féllu niður ferðir 24. og 26. desember og aftur 31. desember. Austurfrétt hefur að undanförnu kallað eftir upplýsingum frá Íslandspósti um ferðir sem fara átti 19. og 27. desember og 2. og 7. janúar. Því var ekki svarað beint.

Íslandspóstur sagði aukaferð hafa verið farna laugardaginn 21. desember. Breiðdælingar kannast ekki við þá ferð. Valur Þeyr Arnarsson, sem býr á Randversstöðum innst í Suðurbyggðinni, birti á Facebook myndir af póststimplum bréfanna sem hann fékk 9. janúar. Elsta bréfið var dagsett 12. desember á Reyðarfirði. Valur fékk heldur ekki fyrir jól sendingu sem skönnuð var í móttöku á Reyðarfirði 18. desember.

Vont að fá ekki pantanir á réttum dögum


En þetta er ekki eindæmi. Íbúar fá sent SMS þegar ekki er tími til að afhenda sendingar. Þá er reynt að koma þeim út í næstu ferð. Viðmælendur segja það yfirleitt hafa tekist, ekki alltaf og sjaldnast hafi tvær ferðir sömu vikuna fallið niður. Austurfrétt hefur undir höndum SMS til íbúa um sendingar sem ekki komst alla leið frá 12., 19., 21. og 29. nóvember auk 3. desember.

„Jólakortin eru eitt, en það er ferlegt að fá ekki lyf eða varahluti sem við pöntum,“ segir Gróa Jóhannsdóttir, bóndi á Hlíðarenda í Norðurdal í Breiðdal sem skrifaði opið bréf til Íslandspósts. Hún fékk jólakort stimplað 13. desember þann 9. desember. Samkvæmt tilkynningum Íslandspósts var síðasti skiladagur innanlands fyrir jólapóst á milli landshluta þann 20. desember.

Stöðvarfjörður og Breiðdalur í sömu ferðinni


Þann 1. júní síðastliðinn lokaði Íslandspóstur fjórum pósthúsum í Fjarðabyggð: í Neskaupstað, á Eskifirði, Fáskrúðsfirði og Breiðdalsvík. Þar með breyttist verklagið þannig að farið var að keyra öllum pósti í Breiðdal út frá Reyðarfirði. Breiðdælingar segja tímann sem ætlaðan er til þess of knappan og virðast hafa sitthvað til síns máls, miðað við útreikninga á forsendum Íslandspósts.

Póstinum er ætlað að dreifa pósti í Stöðvarfirði og Breiðdal, bæði þéttbýli og dreifbýli þriðjudaga og fimmtudaga. Honum er ætlað að koma til skila bréfum í hús, keyra út heimsendingar auk þess að setja í póstbox sem eru tvö, annað á Stöðvarfirði, hitt á Breiðdalsvík. Pósturinn dreifir allt að 20 kg sendingum í sveitir og þyngri gegn aukagjaldi.

Hvað tekur langan tíma að keyra póstleiðina?


Áætlað er að pósturinn fari af stað frá Reyðarfirði á milli klukkan 9-10 á morgnana, eða eftir að póstflutningabíll úr Reykjavík er kominn á staðinn. Áætlað er að pósturinn sé kominn til baka á Reyðarfjörð milli klukkan 14:30-15:30. Álykta má að hann þurfi að vera kominn fyrir klukkan 16:00 þegar pósthúsið lokar, en upp úr því kemur póstflutningabíll sem fer frá Egilsstöðum til að sækja póstinn sem fer til Reykjavíkur.

Miðað við athugun Austurfréttar í gegnum Google Maps tekur um slétta þrjá tíma að keyra leiðina fram og til baka. Er þá miðað við að farið sé frá Reyðarfirði í gegnum Stöðvarfjörð, að innsta bæ í Norðurdal í Breiðdal, aftur út og upp að innsta bæ í Breiðdal og út í gegnum Suðurbyggðina að ysta bæ, síðan til Breiðdalsvíkur og aftur til Reyðarfjarðar.

Útreikningar Google Maps gera ráð fyrir að meðaltíma við bestu aðstæður, að hvorki önnur umferð né færð hægi á akstrinum. Í þeim er ekki gert ráð fyrir neinum stoppum. Pósturinn þarf ekki heim að bæjum en hins vegar að stoppa til að setja í póstkassa við heimreiðar í sveitum. Þá er eftir að fylla á póstboxin eða koma til skila sendingum og bréfum í þéttbýli. „Þetta er of mikið fyrir einn mann,“ segir Gróa.

Endurskoða verklag


Í svörum Íslandspósts til Austurfréttar að yfirstandandi vetur sé sá fyrsti eftir breytingarnar á póstþjónustunni síðasta sumar. Tekið sé með þakklæti við öllum ábendingum á borð við þær sem komið hafa fram frá Breiðdælingum síðustu daga því þær hjálpi til við að bæta þjónustuna. Starfsfólk Íslandspósts á Reyðarfirði sé alltaf af vilja gert til að þjónusta íbúa vel. Í kjölfar athugasemdanna verði ferlar og útbúnaður yfirfarnir.

Komið er á það verklag að starfsmenn okkar munu hafa samband við viðskiptavini áður en þeir fara af staðnum til að finna leiðir til að koma sendingum til skila. Íbúar eiga ekki að þurfa eftir sendingum sínum á Reyðarfjörð, þeim verði skilað í næstu ferð eða eftir samkomulagi. Símanúmer á sendingum hjálpi til í þeim kringumstæðum.

Íslandspóstur segir jólavertíðina og síðasta ár hafa gengið vel


Þar segir að Íslandspóstur þjónustu bæði þéttbýli og dreifbýli um allt Ísland, oft við krefjandi aðstæður í formi óveðurs. Ávallt sé þó reynt að veita bestu þjónustu um leið og öryggi starfsfólks sé tryggt. Póstboxin séu hluti af sjálfvirknivæðingu og hafi verið vel tekið.

Austurfrétt spurðist einnig fyrir um aðrar tafir á póstsendingum á Austurlandi fyrir jól. Í svari Íslandspósts kemur fram að lokun á Holtavörðuheiði á Þorláksmessu hafi haft áhrif á dreifingu á Norðurlandi austur að Vopnafirði. Í byrjun desember tafðist sending vegna veðurs og í Neskaupstað var meðal annars gripið til þess ráðs að afhenda sendingar eftir kvöldmat.

Í yfirlitsfrétt frá Íslandspósti um árið 2024 segir að jólavertíðin hafi gengið sérlega vel því Póstmiðstöðin hafi verið tóm í lok hvers dags og nær engar tafir í vertíðinni. Þar segir að 96% innlendra sendinga á landsbyggðina hafi verið afhentar samdægurs eða daginn eftir á síðasta ári.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar