Tveir handteknir vegna árásar í Neskaupstað
Tveir einstaklingar voru í gær handteknir í Neskaupstað, grunaðir um aðild að árás í bænum þar sem farið var inn í hús og húsráðendum ógnað með eggvopni.Íbúar í Neskaupstað urðu vitni að því þegar annar mannanna var handtekinn á planinu við íþróttahús bæjarins um hádegið í gær, í kjölfar eftirgrennslunar lögreglu sem íbúar urðu varir við.
Norðfirðingar segja málið tengjast handrukkun en það fæst ekki staðfest hjá lögreglu.
Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni barst tilkynning snemma í gærmorgun um að farið hefði verið inn í hús í umdæminu og húsráðendum ógnað með eggvopni. Einn fékk smávægilega áverka en þeir voru ekki tilkomnir vegna vopnsins.
Lögreglan handtók í gær tvo karlmenn sem grunaðir eru í málinu. Teknar voru af þeim skýrslur í gær og þeim sleppt að því loknu. Málsatvik eru talin liggja fyrir en lögreglan veitir að svo stöddu ekki frekari upplýsingar um málið.