Skip to main content

Um 100 manns ráðin til sumarafleysinga hjá Fjarðaáli

FréttirThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 03. maí 2012 10:57Uppfært 08. jan 2016 19:23

alver_eldur_0004_web.jpg
Liðlega 450 manns sóttu um sumarstörf hjá Alcoa Fjarðaáli og hafa rúmlega eitt hundrað manns verið ráðin úr þeim hópi. Það er svipaður fjöldi og undanfarin ár. 

Guðný Björg Hauksdóttir, framkvæmdastjóri mannauðsmála hjá Fjarðaáli, segir að um 40% þeirra sem ráðin voru hafi áður starfað í sumarafleysingum hjá fyrirtækinu. Hún segir ennfremur að í kringum 60% þeirra sem sæki um sumarstörf séu að austan eða eigi nákomna ættingja þar. 

„Um 30% koma af höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi og 10% koma að norðan,“ segir Guðný. Hjá Fjarðaáli verða sumarstarfsmenn að hafa bílpróf, vera orðnir 18 ára og hafa staðið sig vel í vinnu til þessa, segir í tilkynningu fyrirtækisins.