Úrslitakeppnin í blaki hefst í kvöld
Úrslitakeppni karla um Íslandsmeistaratitilinn í blaki hefst í kvöld þegar Þróttur tekur á móti KA.Leikið verður í íþróttahúsinu í Neskaupstað klukkan 19:30 í kvöld en annar leikur liðanna verður á Akureyri á föstudagskvöld.
Það lið sem fyrr vinnur tvo leiki kemst í undanúrslitin. Liðin mættust tvisvar fyrir áramót í deildinni, KA vann fyrri leikinn á Akureyri 3-2 en Þróttur þann seinni í Neskaupstað 3-0.
Með góðum endaspretti náði Þróttur fjórða sæti deildarinnar og þátttökurétti í neðri krossi, hársbreidd á undan KA sem varð fimmta og spilaði í neðri krossi. KA vann þar fimm af sex leikjum sínum meðan Þróttur vann tvo af fjórum í efri krossinum.
Úrslitakeppni kvenna hefst á morgun. Þar mætir Þróttur HK í fyrsta leik í Kópavogi.
Mynd: Blakdeild Þróttar/Sigríður Þrúður