Varað við hríð í fyrramálið
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun vegna hríðarveðurs í fyrramálið fyrir Austurland að Glettingi og Austfirði.Viðvörunin gildir frá klukkan fjögur í nótt til klukkan átta í fyrramálið á Austfjörðum en klukkustund lengur á Austurlandi.
Veðurspáin er hins vegar sú sama fyrir bæði spásvæði. Von er á vestan hvassviðri, 15-23 m/s og slyddu sem fellur sem snjókoma til fjalla. Á þessum tíma má búast við lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum.
Mynd: Landsbjörg