Varla ástæða til að veiða ref í fólkvanginum
Sérfræðingar Náttúrustofu Austurlands telja ekki ástæðu til að veiða ref í Fólkvangi Neskaupstaðar. Öðru máli gegnir hins vegar um mink.Þetta kemur fram í umsögn Náttúrustofunnar um áform Fjarðabyggðar um meindýraeyðingu á svæðinu. Umsögnin er í takt við eldri umsagnir sem stofan hefur gefið um sama erindi.
Þar er bent á að refaveiðar hérlendis séu fyrst og fremst til að koma í veg fyrir tjón af völdum refanna svo sem á búfénaði eða náttúru, en tjón af völdum villtra dýra er nánar skilgreint í lögum.
Engar nytjar eru í Fólkvanginum og ekki talið að refurinn ógni heilsu manna eða búfénaðar þar. Helst er að hann hafi neikvæð áhrif á fjölda fugla, enda eru fuglar aðalfæða refs hérlendis allan ársins hring. Bent er á að ekki séu til tölur til að styðja fullyrðingar um áhrif á varpfugla á svæðinu.
Annars staðar hafi fuglum ekki fækkað þótt ref megi fjölgað. Á nokkrum stöðum eru þó til staðar staðbundin áhrif á varp. Þá eru talin takmörkuð tengsl milli stofnstærðar rjúpu og refs.
Heimskutarefurinn er eina villta landsspendýrið á Íslandi, hefur verið hér frá því fyrir landnám og er hluti af vistkerfi landsins. Sífellt vinsælla verður að sjá villt dýr í sínu náttúrulega umhverfi og er vakin athygli á að refaveiðar í vinsælu útivistarsvæði geti haft neikvæð áhrif á ímynd svæðisins.
Niðurstaða Náttúrustofunnar er því sú að ekki sé ástæða til að veiða ref í fólkvanginum út frá vistfræðilegum sjónarmiðum. Veiðar eigi aðeins að leyfa til að koma í veg fyrir raunverulegt og vel skilgreint tjón. Hvatt er til þess að sveitarfélagið Fjarðabyggð setji stefnu um veiðar á svæðinu vegna aukinnar ásóknar veiðimanna og verði það tengt við reglulega úttekt á dýralífinu þar.
Náttúrustofan telur hins vegar annað eiga við um minkinn sem sé ágeng tegund í íslenskri náttúru. Því sé ekkert til fyrirstöðu sem hamli veiðar á honum nema að lágmarka verði ónæði gesta í fólkvanginum.
Í bókun eigna-, skipulags-, og umhverfisnefndar segir að veiðar á refi og mink í fólkvanginum verði með sama sniði og undanfarin ár.