Vegagerðin auglýsir drög að matsáætlun
Vegagerðin hefur auglýst drög að tillögu að matsáætlun á Austurleið (F923) um Hrafnkelsdal. Vegurinn er kallaður í daglegu tali Snæfellsleið og liggur frá Aðalbóli í Hrafnkelsdal inn að Snæfelli.Vegagerðin hefur auglýst drög að tillögu að matsáætlun vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Austurleið, fjallvegi 923, í Hrafnkelsdal á Fljótsdalshéraði.
Fyrirhugað er að byggja 9,7 km langan nýjan veg frá Kárahnjúkavegi á Tungu, um Aðgöng 3 Kárahnjúkavirkjunar á Tungusporði í Glúmsstaðadal, niður að Aðalbóli í Hrafnkelsdal. Nýlagning er um 6,5 kílómetrar að lengd en vegurinn fylgir núverandi Snæfellsleið á rúmlega 3 kílómetra kafla, frá Aðalbóli inn að Laugarhúsum þar sem vegurinn beygir upp úr Hrafnkelsdalnum, upp á Ytra Kálfafell.
Fram kemur á vef Vegagerðarinnar að markmið framkvæmdarinnar er að skapa góða aðkomu að Vatnajökulsþjóðgarði úr Jökuldal og að tengja betur Jökuldal og Vesturöræfi.
Drög að tillögu að matsáætlun eru kynnt á vefnum, samkvæmt reglugerð, númer