Vegur úr Hrafnkelsdal, tillaga að matsáætlun
Tillaga að matsáætlun fyrir veg inn úr Hrafnkelsdal, inn á Kárahnjúkaveg um Tungusporð, hefur verið lögð inn til málsmeðferðar hjá Skipulagsstofnun samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum.
Á vef Vegagerðarinnar kemur fram að allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir. Hægt er að koma skriflegum athugasemdum við tillögu að matsáætlun til Skipulagsstofnunar. Frestur til athugasemda er til 18. mai næstkomandi.
Heimasíða Vegagerðarinnar.