Veiðiþjófar gómaðir á jóladag
Lögreglumenn á Fáskrúðsfirði gómuðu tvo veiðiþjófa í gær sem skotið höfðu hreindýr. Þeir sögðust hafa verið á refaveiðum en ekki staðist freistinguna þegar þeir urðu varir við dýrið.
Upp komst um verknaðinn við venjubundið umferðareftirlit. Lögreglan hafði afskipti af bifreið sem í voru menn sem klæddir voru í veiðigalla og „virtust mjög vel útbúnir til veiða,“ að því er fram kemur í frétt frá Löreglunni.
„Þeir kváðust hafa verið við refaveiðar í Hamarsfirði og ekki staðist mátið þegar hreindýrs varð vart.“ Málið telst upplýst.