Vilja byggja topp sjósundsaðstöðu á besta stað í Neskaupstað

Lengi hefur verið fólk í Neskaupstað sem stundar sjósund sér til ánægju og heilsubótar en ekki haft neina sérstaka aðstöðu við sjávarmál. Hópur hefur nú tekið sig saman um hugmyndir um uppbyggingu aðstöðu í Kvíabólsfjöru.

Ólafía Zoéga er arkitekt í Björgvin í Noregi og uppalin í Neskaupstað. Hún hefur útfært fyrir hópinn hugmyndir um aðstöðu sem yrði bæði fyrir sjósundsfólks og kajakræðara.

„Það var stofnaður hópur á Facebook árið 2021, fyrir fólk sem vildi fá sauna/baðstofu í fjöruna fyrir neðan kirkjuna í Neskaupstað. Þar er lítil sandfjara og kayakklúbburinn Kaj er þar með sína aðstöðu. Þarna er stunduð kajakmennska, sjósund og annað sjósport og fjaran er sú eina í bænum þar sem hægt er að rölta um og fleyta kerlingar.“

Ólafía hefur sótt innblástur í sögu Norðfjarðar. „Um miðja síðustu öld voru fleiri en 40 bryggjur og margir fjölmargir beituskúrar á Norðfirði en í dag eru fáar bryggjur og skúrar eftir. Ein af hugmyndunum sem ég vann með var baðstofa með bryggju í Kvíabólsfjörunni.“

Ýmsir styrkir hafa fengist til hönnunarvinnunnar og heimaaðilar hafa stutt vel við verkefnið en þrátt fyrir umsóknir hefur ekki enn fengist styrkur frá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða til að ganga lengra. Fyrir liggur vilyrði frá Fjarðabyggð um nýtingu svæðisins, sem samkvæmt deiliskipulagi er ætlað fyrir þjónustuhús og bryggju.

Lengri útgáfa birtist í Austurglugganum. Hægt er að panta áskrift hér.


Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.