Ævintýri heppnu Danmerkurfaranna
Síðastliðinn sunnudag fóru þrír elstu árgangarnir í Grunnskóla Reyðarfjarðar í skólaferðalag til Esbjerg í Danmörku og áttu að koma til baka á sunnudaginn 18 apríl með flugi. Í gær þegar ljóst var að ekkert væri öruggt varðandi flugsamgöngur vegna gossins í Eyjafjallajökli og var pantað far fyrir hópinn með Norrænu sem fer frá Esjberg á morgun laugardag. Krakkarnir koma því siglandi heim þriðjudagsmorgun í stað þess að lenda í Keflavík á sunnudaginn.
Héðan fóru fjörutíu og tveir krakkar og fimm fararstjórar og gistu hjá krökkum í Vestervangskolen í Esbjerg sem heimsóttu Reyðarfjörð og fleiri staði í september síðastliðnum. Þessi nemendaskipti eru styrkt af dönskum sjóði sem heitir Cirius og styrkir nemendaskipti og samskipti skóla á alþjóðavettvangi.
Ásta Ásgeirsdóttir skólastjóri Grunnskóla Reyðarfjarðar og hennar fólk er að standa sig frábærlega. Þau náðu að panta far með Norrænu, útvega teppi fyrir hópinn og fá flugið til Íslands endurgreitt. Það er ómögulegt að segja hvenær þau hefðu komist heim ef þessi leið hefði ekki verið valin og í raun ótrúleg heppni að Norræna er á réttum stað á réttum tíma fyrir hópinn.
Krakkarnir eru búnir að eiga góðan tíma með dönskum vinunum – þau eru búin að skoða Esjberg, danskt orkuver og fara í Lególand og í dag fara þau og skoða fallega náttúru við Blavand og fá svo siglingu með Norrænu og hálfan dag í Færeyjum á mánudaginn í kaupbæti. Hópurinn kemur heim þriðjudaginn 20 apríl reynslunni ríkari.
Á myndinni eru krakkarnir frá Esbjerg og Reyðarfirði í heimsókninni til Reyðarfjarðar í september 2009