Fjárframlög til fræðaseturs Háskóla Íslands á Egilsstöðum eru tryggð á þessu ári. Bæjarráð Fljótsdalshéraðs fagnaði því á fundi sínum nýverið. Í bókun ráðsins segir að væntingar séu miklar til starfsemi fræðasetursins.
Heimilt verður að veiða þrettán hundruð þrjátíu og þrjú hreindýr á tímabilinu 1. ágúst til 15. september 2009, samkvæmt auglýsingu Umhverfisstofnunar. Að auki verður heimilt að veiða hreindýrskálfa sem fylgt hafa felldum kúm, en þá skal fella sé þess kostur. Langflest dýrin, eða sex hundrað og sjötíu, verður heimilt að veiða á Norður-Héraði.
Í hundslappadrífu sunnudagsins settist ég við tölvuna mína og kíkti sem oftar á vef Austurgluggans.Rak ég fljótlega augun í grein með yfirskriftinni Smjörklípumeistara svarað og þótti afar athyglisverð fyrir ýmissa hluta sakir.Hana skrifa valinkunnir og margkjörnir sveitarstjórnarmenn í fjórðungnum, þeir Smári Geirsson og Þorvaldur Jóhannsson.
Ráðstefna um Vatnajökulsþjóðgarð verður haldin á Hótel Héraði Egilsstöðum föstudaginn 23. janúar n.k. Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra flytur opnunarávarp og í kjölfarið stíga fjölmargir framsögumenn á stokk. Fjalla á um þjóðgarðinn og tækifæri sem hann skapar í ferðaþjónustunni.
Stór hjörð hreindýra er skammt frá veginum yfir Fagradal, Reyðarfjarðarmegin, og telur hún um níutíu dýr; fullorðna tarfa, kvígur og kálfa. Hjörðin hefur verið á þessum slóðum í vetur og kvarta bílstjórar sáran yfir því að önugt sé að aka þessa leið snemma morguns í myrkrinu. Þá hlaupi dýrin þvers og kruss yfir veginn og megi menn hafa sig alla við að aka ekki á þau.
Vegfarendur eru því beðnir um að sýna sérstaka aðgát á dalnum.
Dr. Þórólfur Matthíasson hagfræðiprófessor ritar sitt lokasvar til Smára Geirssonar og Þorvaldar Jóhannssonar varðandi aðdraganda efnahagshrunsins á Íslandi.
---
Sjá áður birtar greinar: Frá velsæld til vesældar, Miklir glæpamenn erum vér, Fullar hendur smjörs? og Smjörklípumeistara svarað.
Vaxtarsprotar á Austurlandi er áhugavert verkefni á vegum Impru og markmið þess að hjálpa fólki til sveita til að skapa sér nýja eða aukna atvinnu í heimabyggð.
Á námskeiðum fram til vors verður fólki á Austurlandi hjálpað að þróa hugmyndir að tekjuskapandi verkefnum og er kennsla og ráðgjöf því að kostnaðarlausu.