Allar fréttir
Landsréttur sýknaði Fljótsdalshérað af öllum kröfum VBS eignasafns
Landsréttur hefur sýknað sveitarfélagið Fljótsdalshérað af öllum kröfum VBS eignasafns ehf. en einkahlutafélagið taldi sveitarfélagið hafa gerst brotlegt með að hafna beiðni þess um framlengingu á lóðasamningi um lóð á Egilsstöðum sem er óbyggð. VBS keypti leiguréttinn að lóðinni á uppboði árið 2007.Stærsta jólatré á Austurlandi, kannski Íslandi?
Reyðfirðingarnir Sindri Brynjar Birgisson og María Emma Arnfinnsdóttir réðust ekki á garðinn þar sem hann er lægstur nýafstaðin jól. Réttara væri að segja að þau hafi ekki ráðist á lægsta tréð. Þau fengu sér 4,2 metra hátt tré í stofuna sem Austurfrétt telur vera hæsta tré landins hjá fjölskyldu - þangað til annað kemur í ljós.
„Góðir leikmenn að koma upp úr yngri flokkastarfinu okkar"
14 leikmenn skrifuðu undir samninga við Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar (KFF) þann 22. desember síðastliðinn. Tólf skrifuðu undir samning vegna meistaraflokks karla og tvær stúlkur er spila með sameiginlegu liði KFF, Hattar og Leiknis. Níu skrifuðu undir sína fyrstu samninga.
35.000 metrar syntir í Stefánslaug
Gamlárssund sunddeildar Þróttar fór fram á gamlársdag síðastliðinn. Syntir voru tæpir 1400 ferðir í Stefánslaug í Neskaupstað. Það gera um 35.000 metra. Var þetta fjáröflunarsund og söfnuðust rúmlega 50 þúsund krónur.