Grunnskóli Reyðarfjarðar stigahæstur í skólaglímu Íslands: Myndir
Grunnskóli Reyðarfjarðar varð stigahæstur í skólaglímu Íslands sem fram fór á Reyðarfirði um seinustu helgi. Tveir austfirskir glímumeistarar lyftu skólameistaratitlum.
Í sjöunda bekk vann Haraldur Eggert Ómarsson alla andstæðinga sína sex og í tíunda bekk varð Patrekur Stefánsson efstur með þrjá vinninga. Að auki unnu Reyðfirðingar tvo flokka í bændaglímu.
Ljósmyndari Agl.is var á staðnum. Nánari úrslit eru á vef Glímusambandsins.