Bæjarmálin – fýla eða frumleiki.

siddi ragnarsStjórnun lands eða sveitarfélags er eitthvað sem snertir alla íbúa þess og allir ættu að hafa áhuga á, en er það svo. Hvernig stendur á því að áhugi á þátttöku í bæjarmálum er jafn lítill og raun ber vitni?

Getur verið að fólk hugsi sem svo að vinna pólitískra fulltrúa sé illa borguð, vanþakklát, og að áhugi þeirra sem veljast til starfa sé umsvifalaust drepinn með kerfismennsku, skriffinnsku og óbærilegum leiðindum? Getur verið að þeir örfáu hugsjónamenn, sem vilja leggja fram krafta sína fyrir bæinn sinn, leggi ekki í það vegna ómanneskjulegs álags með annarri vinnu, tekjutaps, og svo jafnvel hugsanlegra ásakana um annarleg sjónarmið eða þrönga hagsmunavörslu?

Eldhúskrókurinn hefur verið vettvangur ýmissa lausna og þar vita allir betur. Þessir eldhúskrókssérfræðingar hafa komið skoðunum sínum á framfæri á oft óvæginn hátt og gjarnan viðhaft þau sjónarmið að með því að gefa kost á sér í pólitísku starfi sé fólk að gefa skotfæri á sjálfum sér.

Mér er það ljóst að á netinu verða alltaf til einstaklingar sem reyna að upphefja sjálfan sig með aurkasti, lélegum bröndurum og rógburði, en það hryggir mig að fólk sem maður hefði haldið að væri nokkuð skynsamt sé síðan að dreifa þessum óhróðri og „læka" á það. Eigum við ekki að láta gott heita.

Þetta er auðvitað málað sterkum litum, en mér finnst samt umhugsunarvert að umgjörð um ákvarðanatöku sveitarfélaga sé jafn veik og raun ber vitni. Fólk sé yfirleitt að sinna þessum málum eftir sína aðalvinnu, dauðþreytt, og stelandi tíma hér og þar til að mynda sér skoðum sem hefur svo áhrif á okkur öll. Þetta þættu ekki góðir stjórnunarhættir í fyrirtæki sem veltir 3000-4000 milljónum króna á ári, eins og sveitarfélagið gerir.

Egilsstaðir er fagur bær og þjónusta mun meiri en gera mætti ráð fyrir í ekki stærra samfélagi, en að mínum dómi getum við gert hann enn skemmtilegri og ég held líka að við gætum gert vinnu við bæjarstjórnarmálin mun skemmtilegri. Ég ímynda mér, án þess að vita það þó, að fundir fari alltof mikið í afgreiðslumál, umsagnir og þvíumlíkt, en fabúleringar um sveitarfélagið okkar komist ekki að. Ég fagna því sérstaklega stofnun félags um þjónustusamfélagið Fljótsdalshérað sem sveitarfélagið, ferðaþjónustuaðilar og áhugamenn standa að, bjartsýni mín jókst til mikilla muna.

Ég vil að lokum gjarnan koma með nokkrar hugmyndir um hluti sem við gætum gert, án þess að það eigi að þurfa að kosta of mikið, en margt af þessu eru eflaust fleiri en ég að hugsa um. Ég er viss um að fyrirtæki og einstaklingar myndu vilja koma að mörgu af þessu án mikils endurgjalds:

1) Útsýnisstað ofaná vatnstanknum
Ég gef ekkert fyrir EES reglugerðarbull um hryðjuverkahættu, er Perlan ekki byggð á vatnstönkum? Hugsið ykkur hvað yrði flott að horfa yfir bæinn þaðan.

2) Gosbrunn með litaspjaldi við áningarstaðinn við Lagarfljótsbrúna
Ég er viss um að píparar bæjarins myndu gefa vinnu sína við að tengja dæluna og ISAVIA gefa spotta frá flugvallarljósunum. Þá yrði þetta svona móttökugosbrunnur fyrir flugfarþega þegar kviknar á brautarljósunum.

3) Hengibrú yfir Eyvindarárgilið
Brú sem yrði til dæmis með plexigleri í gólfið svo fólki finnist það í lausu lofti, svona Indiana Jones fílingur. Auðvitað yrðu hún gerð örugg, en samt með nógu mörgum hauskúpuskiltum og viðvörunum svo allir yrðu að prófa, must see. Brúin mynda líka útvíkka útivistarsvæðið fyrir göngu-og hlaupa-meiníakka.

4) Ljósormur og þokulúður í Fljótinu
Þeyttur yrði þokulúður og dreginn ljósaormur um Fljótið, sem boðaði komu ormsins. Mismunandi staðir, en alltaf sami tími t.d. vikulega í ágúst, svo allir væru að pissa á sig af spenningi hvar hann kæmi upp næst.

5) Kláfferja við Straum
Kláfferjan við Straum yrði löguð og samið við nokkra karla um að draga fólk yfir einisinni í viku um sumartímann.

6) YL-STRÖNDIN.
Ylströndin við Urriðavatn, eða annarsstaðar, er svo góð hugmynd að það er beinlínis skylda okkar að koma því máli áfram, að ekki sé talað um beinan peningalegan ábata fyrir rekstraraðila, landeiganda og aðra sem að því kæmu. Kannski mætti setja ylströndina við Lagarfljótsbrúna, er fólk ekki að ferðast heimshluta á milli til að geta baðað sig í svona leirskólpi ?

Eflaust hafið þið mun fleiri hugmyndir og endilega komið þeim útúr eldhúsinu, á uppbyggilegan hátt, gerum lífið skemmtilegra. Ég held að fullt sé af fólki sem væri til með að vinna við svona hluti í sjálfboðavinnu og örugglega myndu einhver fyrirtæki styrkja svona uppátæki gegn smá auglýsingu. Bæjarfélagið þarf hinsvegar að afla heimilda, semja við landeigendur og þvíumlíkt og gefa svo út hvað megi gera og senda einn mann útaf skrifstofunni til að vinna að þessu. Hefjumst handa, EKKI FLEIRI SKÝRSLUR !

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.