„Grimmasti leikur sögunnar" 134 miljón punda mark QPR
Um leið og ég, harður stuðningsmaður Derby County , óska QPR og stuðningsfólki (m.a. vini mínum Birni Hafþóri Stöðvarfirði) velfarnaðar í úrvalsdeildinni ensku, er ég enn hugsi yfir því hvað knattspyrnan getur stundum verið grimm og miskunnarlaus. .Eins og ágætur þjálfari Derby Steve McClaren sagði eftir leikinn „ Þetta var grimmasti leikur sögunnar „ Eina spyrna QPR í leiknum á markið rataði inn. Fyrirliði Derby R.Keogh lagði hann fyrir markaskorarann. Getur það verið sárara?. En ekki meir um það í bili svona er knattspyrnan.Af hverju ég er stuðningsmaður Derby County „ Hrútanna"?: Ungur leikmaður Gharles Frederik „Charlie George" vakti athygli mína á árunum kringum 1968-69 þá Arsenal leikmaður .Eg hreifst svo af áræðni og snilld þessa drengs að þegar hann fór yfir til Derby County fylgdi ég honum sem skugginn og stuðningsmaður. Síðan hefi ég haldið með þessum frábæra klúbbi „ Hrútunum" og fylgt þeim í gegnum sætt og súrt alla tíð síðan.
Ég beið nokkuð lengi eftir því að sjá leik með klúbbnum mínum. Charlie karlinn var löngu hættur þar þegar að honum kom. Einn afastrákurinn minn er harður Manchester United ( MUN) aðdáandi og ég fór með hann á leik til Manchester. Leikurinn var á „Gömlu Tröð" heimavelli MUN.Þeir voru þegar orðnir Englandsmeistarar er þessi leikur fór fram Hann var í lokaumferðinni 5.maí 2001 við Derby County sem var í fallhættu. Ekki skemmdi það fyrir að Skagamaðurinn Þórður Guðjónsson kom inn á í seinni hálfleik sem leikmaður Derby.
Mínir menn stóðu sig, vel skipulagðir og gáfu hvergi eftir og unnu Englandsmeistarana á þeirra heimavelli 1-0. Við félagarnir sátum aftan við mark MUN frekar ofarlega .É g gleymi ekki augnablikinu þegar Markholm Christie negldi boltanum í netmöskvana svo vældi vel í. Barthez markvörður MUN leit ekki vel út. Hann átti ekki möguleika. Markið kom seint í leiknum . Eg áttaði mig ekki strax á því þegar MUN fylgjendurnir fóru að syngja saman hátt í kór „City down-City down-City down". Strákurinn hnippti í mig og sagði: „flott afi City er fallið en Derby er áfram í útrvalsdeildinni." Þessi sigur á Englandsmeisturunum á þeirra heimavelli tryggði Derby áfram sæti í úrvalsdeildinni en nágrannarnir Manchester City féllu niður.
Að leikslokum horfðum við félagarnir á er meistararnir voru krýndir og Sir Alex Ferguson þjálfari þeirra tók þátt í athöfninni með tvö afabörn sér við hlið. Mögnuð stund og meiriháttar show. Mér er minnistætt eftir leikinn er leikmenn Derby keyrðu burt af svæðinu á rútu sinni þá stóðu stuðningsmenn MUN heiðursvörð meðfram akstursleiðinni og klöppuðu og veifuðu ákaft og þökkuðu „ Hrútunum" leikinn. Mér fannst á þeirri stundu að þeir gætu verið að veifa til mín. Manchester-borg var jú sannarlega þeirra .
Höfundur er erby County–stuðningsmaður / eldri borgari Seyðisfirði.
P.S: Grein þessi er skrifuð eftir leik aldarinnar Derby-QPR og 134 milljón punda mark QPR sem var þeirra eina skot á markið í öllum leiknum.Getur þetta talist sanngjarnt?