Björgunarkerra Björgunarsveitarinnar Héraðs
Árið 2012 þegar við vorum nýtekin við stjórn Bsv Héraðs og enginn peningur var til í kassanum kom Nikulás Bragason með grein úr Morgunblaðinu og sagði mér að við yrðum að sækja um styrk. Blaðagreinin fjallaði um styrktarsjóð ISAVIA sem átti að úthluta úr til björgunarsveita í nágrenni flugvalla. Umsókn átti að skila inn í febrúar með kostnaðaráætlun um hvað ætti að nota peninginn í. Nikulás var með hugmynd að kerru með búnaði sem hægt væri að nota í hópslysum, atburðum þar sem væru margir slasaðir.Við höfðum samband við heilsölu sem selur sjúkrabúnað og fengum tilboð. Það var til heppileg kerra hjá Dekkjahöllinni. Samkvæmt tilboðinu og verði á kerrunni sömdum við kostnaðaráætlun sem hljóðaði upp á 6 milljónir og sendum umsókn til Landsbjargar sem sér um ISAVIA-sjóðinn. Við fengum strax loforð um hæðsta styrk 1.4 milljónir og þá var ekki eftir neinu að bíða, drifum okkur í bankann til að fá lán svo hægt væri að byrja.
Búnaður pantaður og greiddur og skýrsla send til Landsbjargar til að fá styrkinn greiddan út. Brunavarnir á Héraði og Baldur Pálsson lögðu til geymsluhúsnæði fyrir kerruna. Nikulás og Baldur unnu svo í að breyta kerrunni og raða í hana.
Við höfum haldið áfram að sækja um styrki frá hinum ýmsu aðilum. Við höfum fengið styrki frá Dekkjahöllinni, Landsvirkjun, Eimskip, Alcoa Fjarðaál, Donna og Brunavörnum á Héraði .
ISAVIA á 3 milljón,
Alcoa Fjarðaál 1 milljó.,
Landsvirkjun 500 þús.,
Eimskip afslátt af fluttningi á búnaði,
Dekkjahöllin töluverðan afslátt af kerru,
Donna 20% afslátt
Brunavarnir lögðu til húsnæði og efni í breytingar á kerrunni
Nikulás á mestan heiðurinn af allri vinnu og hugmyndina. Baldur vann með Nikulási að breytingum. Aðalsteinn og Jón Eiður komu að uppröðun í kerruna.
Í kerrunni er sjúkrabúnaður fyrir stórslys, börur, skröpur, skeljar, teppi, hjartastuðtæki, blóðþrýstingsmælar, hlustpípur, súrefnismettunarmælir, spelkur af hinum ýmsu gerðum, KED-vesti, bakbretti, brunagel, plástrar og grisjur af mörgum gerðum. Við verklok er kerran komin í mun meira en 6 milljónir.
Kerran verður geymd í húsnæði Brunavarna á Héraði.
Virðingarfyllst
Steinunn H. Inigmarsdóttir
Bsv. Hérað
Baldur og Nikulás við kerruna. Mynd: Aðsend