Eins og Bakú hafi verið í gær

flosi1Það er eins og ævintýrið í Bakú hafi verið í gær og ég rétt að jafna mig eftir frábæra ferð. Flugið var aðeins styttra í ár en staðurinn ekki verri. Í gærmorgun lenti ég á Kastrup. Lestin yfir Eyrarsund tekur aðeins 15 mínútur og þá er maður kominn í hjarta Málmeyjar. 

Bakú setti viðmiðið hátt fyrir keppnina í ár í sambandi við gestrisni og skipulagningu. Eftir að hafa hringsnúist í dágóðan tíma, eins og við Rauðhyltingar eigum til, þá komu tvær yndislegar sænskar stelpur sem spurðu hvort ég væri villtur og hringdu á leigubíl fyrir mig svo ég kæmist nú á hótelið mitt. 

Eftir það hófst mikið ævintýri að komast inn í blaðamannahöllina þar sem gæslan er meiri þar en hún var þegar ég fór í gegnum Kastrup. Það tók alltof langan tíma. Eftir það langaði mig að kíkja á Euro-kaffi og fór á upplýsingaborðið til að spyrja til vegar en þar var fátt um svör.

Það tók mig síðan enn góðan tíma til að finna staðinn. Ég tek það fram að þetta getur verið Rauðhyltingurinn að poppa upp aftur en mér fannst hreinlega engar merkingar vera til að vísa til vegar.

En við skulum ekki vera bara neikvæðnin uppmáluð í garð Málmeyjar því það hefur verið tekið stórt skref í þágu aðdáenda. Nú geta aðdáendur verið vissir um að komast inn á Eurovision-staðina til að skemmta sér með keppendum. Það sem vantaði í fyrra var að hugsa betur um aðdáendurna þar sem þeir komust hreinlega ekki inn á klúbbana sem spiluðu Eurovision-tónlist þótt þeir hafi verið búnir að ferðast langt til að taka þátt í gleðskapnum.

Ég kíkti á opnunarblaðamannafundinn þar sem var verið að kynna Malmö. Þar kom meðal annars fram að borgin er ein af fimm umhverfisvænstu borgum Evrópu. Einnig var talað um nýja keppni sem á að vera Danskeppni milli landa eða DBU, sem verður spennandi að fylgjast með. Spurning um að senda sigurvegara Dans, dans dans þáttanna?

Ég ætla að reyna að láta heyra í mér svona af og til og reyna fylgja víkingnum okkar honum Eyþóri og styðja hann vonandi alla leið í úrslit. Eftir fyrstu æfinguna hjá íslenska genginu þá snérist batteríið við og fólk fór að tala um að við ættum bara mjög góða möguleika á að komast áfram. Ég hef fulla trú á þessu lagi og gaman að heyra íslensku aftur en hún hefur ekki heyrst síðan Páll Óskar gerði garðinn frægan árið 1997.

Veðbankar eru rosalega hrifnir af danska laginu og þegar ég kíkti á æfingu hjá Dönunum þá voru þau bara ansi pottþétt. Mér finnst samt eitthvað vanta til að þarna sé kominn sigurvegari.

Aserbaídsjan lítur vel út eftir æfingarnar. Það er eina múslimalandið sem er með í ár þar sem Tyrkland er ekki með. Lagið sjálft er eins og klippt út úr Eurovision árið 1995, svona hvorki gott né slæmt.

Læt þetta duga í bili en þangað til næst bið ég ykkur að senda alla ykkar góðu strauma til Malmö fyrir hann Eyþór okkar.

flosi2

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.