Geimverur, risar og geirvörtur

flosi felix webÞað er búið að vera kátt á hjalla í Málmey síðan að ég kom á föstudaginn. Ég hitti íslenska hópinn og það var mikil stemning þar innanborðs. 

Þegar ég spjallaði við Jónatan Garðason, liðsstjóra íslenska hópsins, og spurði hann hvað stæði upp úr þessari keppni miðað við aðrar þá sagði hann að þeir hefðu lagt mikið upp úr sviðsetningunni og myndatökunum á sviðinu.

Þeir réðu leikara til að syngja og leika atriðin. Þeir sendu svo RÚV sínar hugmyndir að atriðinu og RÚV gat gert athugasemdir við það. Hann sagði jafnframt að skipulagið á samgöngum væri ekki til fyrirmyndar!

Norræna partýið var síðan haldið á laugardaginn þar sem Eyþór Ingi fór á kostum. Danska gellan átti ekki séns eftir að Eyþór söng Somebody to Love með Queen.

Ég náði líka að spjalla aðeins við Felix Bergson sem verður kynnir fyrir RÚV. Hann sagði að Eyþór væri Íslandi til sóma og bætti reyndar við að Ísland sé komið með orðspor fyrir að sýna mikla fagmennsku í kringum atriðið. Það sé meðal annars ástæða þess að Ísland er eina landið sem hefur alltaf komist áfram upp úr riðlinum frá 2008.

Íslenski hópurinn ber af á blaðamannafundum, dreifir góðri orku um Malmö-höllina með því að taka sig ekki of alvarlega og vera opinn fyrir að tala við aðdáendur.

Svíar eru duglegir að skipuleggja partý fyrir aðdáendur og er af nógu að taka. Euro-kaffið er með viðburði alla vikuna og í gær kíkti ég á viðtalskvöld þar sem talað var við keppendur.

Austurríki kom mikið á óvart og ég er ekki frá því að hún komist bara upp úr riðlinum. Kynnirinn er Ameríkani og hann átti ekki orð yfir hversu góða ensku hún talar með fullkomnum bandarískum hreim.

Það var síðan búlgarska gellan sem fékk mig til að fá martraðir um stórar geirvörtur í herberginu hjá mér. Ég gat ekki hætt að horfa á brjóstin á henni þar sem hálf geirvartan var úti og hinn helmingurinn að öskra um að komast út!

Eftir að hafa farið á nokkrar æfingar í höllinni þá voru nokkrir hlutir sem að stóðu upp úr, rappandi geimverur, risar og fiðrildadansar. Ég mun koma með nánari útskýringar á þessu þegar general-prufan er búin.

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.