Spáin fyrir fyrri undanúrslitin

flosi serbiaJæja, þá er komið að stóru stundinni - fyrra undankvöldið í kvöld. Ég ætla að fara yfir hvernig generalprufurnar fóru að mínu mati og gefa svo mína spá fyrir kvöldið.

Austurríki
Það er alltaf spenna að sjá fyrsta lag keppninnar og í ár verður Austurríki í því sviðsljósi. Ég verð að segja að ég var ekki mikill aðdáandi lagsins í byrjun en ég gjörsamlega féll fyrir söngkonunni eftir að hafa séð hana á æfingum og í viðtölum. Hún syngur rosalega vel en vandamálið við lagið sjálft er að það byrjar rosavel en svo er viðlagið bara alveg eins og erindin. Ég er því hræddur um að það skeri sig ekki úr. Það verður á mörkunum að komast áfram.

Eistland
Dömur mínar og herrar! Allir í náttfötin og koma sér vel fyrir og hlusta á ljúfa tóna frá ólettu konunni frá Eistlandi. Þetta er lag sem ég gæti hugsað mér að sé tilvalið að setja á þegar krakkarnir hafa verið óþekkir og þá vantar smá valíum til að sofna. Hún fékk mikið klapp í salnum og flutti þetta rosalega vel. Hún ætti að vera örugg áfram.

Slóvenía
Þetta er eitt af þessum lögum sem er með Euphoria-syndromið en í staðinn fyrir nútíma dansstíl  hafa Slóvenar ákveðið að hafa grímuklædda dansara sem líta út eins og Gladiators. Hún syngur rosalega vel en mér finnst hún vera að reyna of mikið. Ég er ekki viss um að hún sleppi í gegn.

Króatía
Ég kikna í hnjánum þegar ég heyri karlakóra syngja. Það breyttist ekkert þegar ég heyrði króatísku folanna syngja í stíl karlakórs. Ég missti vatnið þegar ég hitti þá á norræna kvöldinu og hefði ekkert á móti því að eiga kvöldstund með þeim. En þeir eru víst allir giftir! Þetta verður lagið sem kemur á óvart í kvöld og kemst áfram.

Danmörk
Danir eru að fara taka þetta í ár og vinna undanriðil 1. Lagið er flott og fellur vel inn í tískuna. Þau litu reyndar út fyrir að vera þreytt á æfingum og seldu lagið ekki nógu vel. Ég er reyndar búinn að fá svolítið ógeð á laginu en ég fílaði það við fyrstu hlustun þannig að ég held að Evrópa muni fíla lagið.

Rússland
Jæja! Rússar hafa ákveðið að boða frið í ár og keyptu sér lampa í IKEA til að bera út boðskapinn. Hún er flott söngkona og mun fljúga áfram. Rússar halda ekki lengi í friðinn því þeir henda einhverjum hnetti í salinn sem meikar hreint engan sens og maður spyr sig hvort treysta eigi Rússum fyrir friðarboðun! Lagið flýgur áfram vegna staðsetningar Rússa í Evrópu.

Úkraína
Úkraínumenn eru ein af sigursælustu þjóðunum í keppninni og maður er alltaf spenntur að sjá hvað þeir gera á sviði. Í ár fengu þeir sinn Jóhann Svarfdæling til að bera söngkonuna á svið í byrjun lagsins. Hann klæðist einhverjum víkingabúningi og er bara asnalegur á sviðinu. En sem betur fer þá fer hann strax af sviðinu og lagið fær að njóta sín því hún syngur eins og engill. Ég vil biðja allar eiginkonur að binda fyrir augun á maka sínum því það er ekki víst að „þeir“ komi niður á jörðina aftur. Mér finnst þetta eitt af fimm bestu lögum kvöldins og ég gæti vel trúað að hún verði meðal þriggja efstu í kvöld.

Holland
Þetta er eitt af þeim lögum sem fylgir best þeim straumum sem eru í gangi í tónlistarheiminum. Það er ekkert skraut á sviðinu, bara hún sem syngur lagið áreynslulaust. Ég vona sannarlega að hún komist áfram en Hollendingar eiga ekki marga vini sem munu kjósa. En þetta lag er frábært James Bond lag og væri á vinsældalistunum ef Adele hefði sungið það.

Svartfjallaland
Dömur mínar og herrar! Svartfjallaland á lag kvöldsins en ekki á jákvæðan hátt. Rapparar í geimverubúningum með öskrandi óvermeikaða barbígellu sem hljómar eins og vælandi köttur. En þetta lag gæti höfðað til ungu kynslóðarinnar og ég verð að viðurkenna það að ég gat ekki hætt að horfa á atriðið því það var svo hræðilegt að ég fór að fíla það. Kannski verðum við öll syngjandi „NANANANANN GÚ“?

Litháen
Jesús! Pissupása dauðans. Úfff! Æi - lagið er ennþá! OMG! Hættu að blikka mig, þetta er orðið pínlegt. Ertu fullur!? OMG ég þoli þig ekki! Farðu af sviðinu svo við getum haldið áfram. Versta lagið í ár.

Hvíta-Rússland
Uppáhalds lagið mitt í kvöld. Loksins kemur lag sem maður getur kallað Eurovision-lag. Þetta er sykurhúðað danslag sem fær mann til að dilla sér og maður fær orðið „solayah“ á heilann. Lagið kemst pottþétt áfram þótt það verði sennilega ekki meðal fimm efstu í úrslitunum. Diskókúlan frá Beyonce virkar og þau nota fiðrildaþema því þau eru með fiðrildaspor sem eru nú þegar dönsuð á Euroclub. Hún var reyndar mjög stressuð á sviði sem gæti haft áhrif en lagið fer klárlega áfram.

Moldavía
Þetta er lag þar sem mér finnst menn hafa unnið heimavinnuna sína vel og atriðið í heild finnst mér flottasta atriði kvöldsins. Hún syngur eins og engill og dansaranir vinna vel með henni og myndavélinni. Þeir nota sömu brellurnar og Aserbaídjan í fyrra með kjól sem breytir um lit, síðan lyftist hún og breytist í risa. Er Jói risi trendið í ár?

Írland
Jæja, stúlkur og hommar! Sitjið fast við sjónvarpið! Eiginmenn - þið ættuð kannski að binda fyrir augun á konunum ykkar núna því Írar hræra svo sannarlega í eggjastokkunum með hálfnöktum karlmönnum. Ef ég væri með svoleiðis þá mundi ég segja við makann að núna væri tíminn til að.... að......... Ég held að lagið komist klárlega áfram en held að Írar séu aftur að gera of mikið og lagið nær ekki að njóta sín.

Kýpur
LEIÐINLEGT.........Þetta var nú alveg til að eyðileggja stemminguna eftir að Írar gerðu allt vitlaust. Hún syngur reyndar vel og það er gaman að heyra hana syngja á móðurmálinu en Jesús, þetta er svoooooooooo leiðinlegt!

Belgía
Lagið hljómar vel í útvarpi en á sviðinu er hann stressaður og heldur ekki lagi. Þeir gerðu líka sömu mistök og Two Tricky forðum með að hafa dansa sem eru alls ekki í takt við lagið og eru bara halló. Fer ekki áfram, því miður því miður, því lagið er flott.

Serbía
Ávaxtakarfan er mætt á svið og túlkar fyrir ykkur djöfulinn og engilinn að reyna að hafa áhrif á ávaxtaprinsessuna. Þessir búningar eru hryllingur. En viðlagið er fast í heilanum á mér og þetta er eitthvað fyrir testósterón FM hnakka. Þær eru of meikaðar og líta bara kjánalega út. En lagið flýgur áfram.

Mín spá fyrir forkeppni 1:
Hvíta-Rússland
Króatía
Danmörk
Eistland
Írland
Moldavía
Rússland
Serbía
Holland
Úkraína

Mín ósk:
Svartfjallaland í staðinn fyrir Eistland

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar