Spáin fyrir seinni undanúrslitin
Þá er komið að seinni undanriðli Eurovision og margir bíða spenntir eftir að Ísland stígi á stokk. Þetta er mikið erfiðari riðill en sá fyrri og erfitt að spá um hverjir komast áfram. En hér kemur mín skoðun eftir síðustu æfingu kvöldsins.Lettland
Flott opnun á keppninni með sætum glimmer-sykurpúðum en þetta lag gerir ekkert fyrir mig og fer ekki í úrslit. Þetta er flott á sviði og virkar vel í sjónvarpi. Góð tilraun Lettland „but computer says no.“
San Marínó
Facebook-gellan mætir aftur. Eftir að hafa séð hana í náttkjólnum með atriðið á sviði held ég að hún eigi það á hættu að komast áfram. Lagið sjálft byrjar of seint en mér finnst seinni hlutinn rosa flottur og grípandi. Hún er hörku söngkona og þegar ég loka augunum þá er þetta bara ekki svo galið. Er þetta lag sem dómnefndirnar kjósa áfram?
Makedónía
Þeir eru með hörku söngvara sem syngur eins og engill en svo kemur grýla í jólatrésbúning og myrðir lagið. Spurningin er hvort Balkan-löndin taki sig saman og kjósi þetta áfram þar sem það er ekkert land þaðan sem komst áfram í fyrri riðlinum, Mér finnst þetta hryllingur og vona að þetta sitji eftir.
Aserbaídsjan
Sigurvegari kvöldsins án efa. Þetta er flott lag, flottur flytjandi og magnað atriði. Þetta hefur ekki sést í Eurovision áður, þessi bardagi á milli þess að vera í búrinu og svo kemur stelpan í hryggjaliðakjólnum sem ætlar að bjarga honum. Mér finnst svona pínu hómóerótík í þessu og held ég að þetta sé lagið sem fái atkvæði frá dómurum og áhorfendum. Ekki mitt uppáhalds lag en flottasti flytjandi kvöldsins. Bakú hugsanlega 2014?
Finnland
Finnar koma í ár með hresst glamúrpopp og eru ekki að spara skilaboðin til Evrópu því Krista hefur talað mikið um réttindabaráttu samkynhneigða. Mér finnst það allt frábært og gott framtak en finnst þetta samt ganga aðeins of langt. Þetta lítur næstum út eins og hún sé bara að gera grín að málefninu. En kæru íslensku karlmenn vinsamlegast sækið poka af ís til að róa litla vininn því það er lesbíukoss í vændum. Hún stóð sig vel á æfingum og mér finnst myndatakan takast rosalega vel. Þetta er land sem fær atkvæði frá löndum sem taka keppnina ekki of alvarlega eins og Bretar.
Malta
Einlægi sykurpúðinn má vera minn einkalæknir héðan í frá. Hann var sætur og flutti lagið vel. Það er eins og þetta atriði hafi verið samið fyrir Glee. Hann er svona Solla Stirða Maltverja, sætur eins og kandýflos. Mér finnst myndatakan ekkert spes, allt of mikið af hópamyndatökum. Þetta er svona Belgía undanriðils 2, þannig að ef allar unglingsstúlkur taka sig saman þá kemst hann áfram.
Búlgaría
Ruglingslegasta lag kvöldsins sem fær mann till að dilla sér í Bollywood-takti. Ég verð reyndar að segja að þessar bakraddir rembast eins og rjúpa við staur með einhverjum óhljóðum sem eiga kannski að vera einhverjir þjóðlegir tónar en fyrr má nú vera. Svo kemur rappandi grímumaður sem kórónar hryllinginn. Hún skipti um búning þannig að ekki fær hún atkvæði út á geirvörturnar sínar.
Ísland
Úffff... ég fæ gæsahúð og tár í augunum. Ég hef verið aðdáandi Eyþórs Inga síðan ég sá hann í keppninni á Íslandi. Það hafa verið miklar vangaveltur um hvaða jakka Eyþór verður í því hann hefur ekki klæðst sama jakkanum á neinni æfingu. Hann er án efa sterkasti karlsöngvari þessa árs. Það er mikið talað um það í blaðamannahöllinni að flutningur, túlkun og útgeislun verði til þess að allir skilji lagið, geti tengt sig á einhvern hátt við það og felli jafnvel tár þegar hann fer á háu tónanna. Hann er í mínum augum pottþéttur áfram og mun gera land og þjóð stolta.
Grikkland
Að mínu mati skemmtilegasta atriði keppninnar og kóngadanslagið á Euroklúbbnum. Grikkir eru ekki með neitt glysatriði en vegna þess að þeir skemmta sér á sviði þá skemmta allir sér með þeim. Klárlega eitt af löndunum sem fer áfram og við munum syngja saman Alkóhól er frítt í Eurovision-partýum komandi ára.
Ísrael
Jésús! Hvað kom fyrir blessaða stelpuna og hver valdi kjólinn? Kjóllinn klæðir hana eins og hún sé 30 kíló þyngri en hún er í rauninni og maður sér hliðarspikið í fellingum á kjólnum. Hún minnir mig á Barbamömmu. Sönglega séð er allt fullkomið og er hún ein af sterkustu söngkonum keppninnar í ár. Þessi risa brjóstaskora sem hún er með kemur henni kannski áfram en mér finnst hún ekki skila laginu eins vel á hebresku og Eyþór gerir á íslensku. Þetta lag er á mörkunum að komast áfram.
Armenía
Armenar hafa ákveðið að nálgast friðinn með því að senda svefnmeðal til Evrópu þar sem það drepur allt sem heitir gleði. Mér hundleiðist á meðan hann er á sviði. Hann lítur út fyrir að vera sjúskaður og gerir ekkert á sviðinu. Þetta lag gleymist áður en það er búið. En velkomin aftur Armenía og ég hlakka til að fá Quele Quele aftur. Því miður 0 stig frá mér núna.
Ungverjaland
Þetta lag er algjörlega í topp 5 hjá mér. Ég elska gítarleik... ég meina elska lagið! En svona í alvöru þá finnst mér vera svona Of Monsters and Men fílingur yfir þessu og það virkar fyrir mig. Söngvarinn er mjög látlaus en gítarleikarinn vegur hann upp með sæta brosinu sínu. Það klikkaði ekkert í gær og mér finnst bakgrunnurinn mjög flottur og í stíl við myndbandið. Ég er ekki viss um að þetta lag fari áfram en ég vona það.
Noregur
Ég var ekki mikill aðdáandi þessa lags þar sem ég hef aldrei haldið upp á Björk en hún syngur einmitt í þeim stíl. Á æfingunni í gær negldi hún þetta og var með flott atriði þar sem allt small saman. Hún syngur vel og er flott en hefði viljað sjá hana í öðrum kjól því hún dansar eins og ólétt kona, langar rosalega að missa sig en getur það ekki. Þetta lag verður klárlega í úrslitunum og meðal tíu efstu
Albanía
Þetta lag hefur ekki höfðað til mín þar sem ég er ekki mikill rokkari sjálfur og er þetta ekki lag sem ég mun hafa í iPodinum mínum. Hinsvegar eru þeir líflegir og flottir á sviði og hljómurinn hjá þeim minnir mig svolítið á tyrkneska rokkið sem hefur notið mikilla vinsælda í Eurovision. Þetta mun því komast áfram og skora hátt. Hann er flottur á sviði og syngur vel og fær mig til að renna í sætinu svona af og til.
Georgía
Þetta lag gæti ekki verið meira and-georgískt enda höfundarnir sænskir. Þetta er fallegur dúett og kemst nokkuð örugglega áfram. Ég varð hins vegar fyrir nokkrum vonbrigðum með það á lokaæfingunni því það var ekkert samband milli þeirra en lagið nýtur sín vel án mikils íburðar og er rosalega vel sungið.
Sviss
Þetta lag fær maður á heilann en því miður virkar það ekki í sjónvarpi. Spurningin er hvort hjálpræðisherinn taki sig saman í Evrópu og kjósi Sviss áfram því lagið verður á mörkunum að komast í úrslitin. Gaman að sjá gamla kallinn á Kontrabassanum.
Rúmenía
Rúmenar hafa fengið fast sæti í úrslitum sama hvort þeir eru með gott eða slæmt lag. Ég er búinn að hringsnúast með þessu lagi, mér finnst þetta það hörmulegt lag að ég er farinn að fíla það og ég held að fólk sem gerir grín að Eurovision kjósi hann. Atriðið sjálft er eitthvað voða X-factorlegt og bara virkar ekki. Hann er hins vegar flottur og algjört kyntröll. Af því að hann er síðastur á svið þá spái ég honum áfram.
Mín spá:
Albanía
Aserbaídsjan
Georgía
Ísland
Noregur
Rúmenía
Finnland
Makedónía
San Marínó
Ísrael
Á mörkunum að komast inn:
Malta inn fyrir Makedóníu
Ungverjaland út fyrir Ísrael
Ég tek það fram að Ungverjaland er mitt uppáhald en ég held að það sé ekki grundvöllur fyrir svona lagi í Eurovision, því miður.