Á ríkissjóður enga vini?

Í umræðum á Alþingi þann 10. maí síðastliðinn sagði fjármálaráðherra Bjarni Benediktsson undrast hvað ríkissjóður Íslands ætti fáa vini. Umræðuefniefnið var vandi ÍL-sjóðs og þeir möguleikar sem eru í stöðunni. Farið var yfir stöðuna í skýrslu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu sem kom út í október á síðasta ári.

Ég er til að vera vinur ríkissjóðs í þessu máli. Í ljósi þess hve lítinn áhuga lífeyrissjóðir hafa sýnt uppbyggingu innviða á landsbyggðinni þá held ég að það væri vel á því að þeir fjármunir sem myndu sparast, við að gera höfuðstól þessara lána upp, færu að hluta í vel skilgreind innviðaverkefni sem myndu nýtast íbúum þessa lands. Með því má leggja grunninn af því að landsbyggðin blómstri okkur öllum til hagsældar.

Í skýrslu fjármála- og efnahagsráðuneytis er talað um að kostnaður ríkisins vegna sjóðsins aukist um 1500 milljónir króna á hverjum mánuði eða um 18 milljarða króna á ári að óbreyttu. Við slit á sjóðnum væri hægt að nýta þennan pening metnaðarfulla innviðauppbyggingu á landsbyggðinni. Við gætum horft til frænda okkar í Færeyjum sem hafa fjárfest svo um munar í bættum samgöngum. Þeir eru nefnilega búnir að sjá út að góðar samgöngur eru undirstaða þess að þjóðin geti lifað og starfað sem ein heild.

Verkefni sem hægt væri að ráðast í á næstu árum, og áratugum eru m.a.:

- Fjármögnun jarðgangnaáætlunar
- Bætt bráðaþjónustu í heilbrigðismálum
- Styrkja nauðsynlega innviði til orkuskipta
- Tvöfalda allar brýr á hringveginum
- Ráðast í uppbyggingu félagslegs húsnæðis
- Uppbygging flugvalla

Ég er viss um að ég yrði ekki einn um að verða vinur ríkissjóðs í þessu máli sé það á hreinu að þessir fjármunir fari í verkefni sem nýtast muni landsmönnum með áþreifanlegum hætti.

Höfundur er sveitarstjórnarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.