Austurland eykur kraftinn!
Í lok árs er ávallt gott að líta yfir farinn veg, sjá það góða og einnig það sem þarf að vinna betur með á komandi ári. Stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) heldur áfram að vera samstíga og sýna kraft Austurlands, sem endurspeglast í áframhaldandi samstöðu sveitarstjórna í landshlutanum, ásamt því að útbúa fleiri lykilgögn sem tala sínu máli um vægi Austurlands í rekstri samfélagsins.Svæðisskipulag Austurlands 2022-2044 markar sameiginlega framtíðarsýn sveitarfélaga á Austurlandi fyrir landshlutann. Svæðisskipulagið endurspeglar kröftuga rödd og samstöðu með mikilvægri og löngu tímabærri innviðauppbyggingu í landshlutanum. Öllum er ljóst, og gögn sýna það glögglega, að Austurland hefur setið eftir varðandi alhliða uppbyggingu innan landshlutans, hvort sem um ræðir samgöngubætur eða aðra alhliða uppbyggingu. Sú staðreynd býr til mikilvæga samstöðu og kraft til breytinga.
Framlag Austurlands til þjóðarbúsins
Úttekt á efnahagsumsvifum Austurlands, framkvæmd af greiningarfyrirtækinu Analytica, er mikilvægt gagn í þeirri vegferð og hefur hlotið verðskuldaða eftirtekt. Efnahagsgreining Austurlands sýnir glögglega að íbúar Austurlands, ríflega ellefu þúsund manns eða um 2,9% af heildarmannfjölda, standa undir um fjórðungi vöruútflutningstekna, um 240 milljörðum á ári, sem skilar þannig stórum hluta í sameiginlega sjóði ríkisins.
Útlit fyrir að þingmönnum fækki
Aðrir landshlutar eru farnir að taka upp álíka aðferðafræði til að sýna fram á réttmæti frekari fjármagns í uppbyggingu á landsbyggðinni. Það skref er mikilvægt því vegna jöfnunarákvæðis eru við hverjar kosningar teknir þingmenn frá landsbyggðinni sökum þess hve fáir búa þar. Ekki er tekin inn í myndina mikilvæg verðmætasköpun landsbyggðarinnar fyrir sameiginlega sjóði ríkisins. Austurland mun, vegna jöfnunarákvæðisins, missa einn þingmann frá Norðausturkjördæmi í næstu Alþingiskosningum.
Alþingiskosningar eru nýafstaðnar og mikilvægt að nýkjörnir Alþingismenn hafi þessi gögn uppi við og tali skýrt og með krafti fyrir sitt kjördæmi. Austurland hefur setið eftir varðandi alhliða uppbyggingu miðað við aðra landshluta. Þetta er mikið áhyggjuefni og tækifæri fyrir sitjandi Alþingismenn Norðausturkjördæmis að snúa þeirri þróun við.
Barist gegn bílastæðagjöldum
Stjórn SSA og sveitarfélög á Austurlandi bókuðu harðlega gegn þeim landsbyggðarskatti sem settur var á með bílastæðagjöldum á Egilsstaðaflugvelli. Markmið aðgerðarinnar var sagt vera til að taka á þeim vanda sem hafði skapast með bílum sem lagt var til lengri tíma. Baráttu sem miðar að því markmiði að hafa 4-5 daga fría gjaldskyldu að lágmarki vegna allrar þeirrar þjónustu frá ríkinu sem íbúar Austurlands þurfa að sækja suður verður haldið áfram.
Framleiðsla kallar á fjölgun íbúa og bætta þjónustu
Atvinnulífið á Austurlandi er kraftmikið og fyrirséð að það muni eflast enn frekar á næstu árum. Framleiðsla og gjaldeyristekjur frá Austurlandi munu aukast enn frekar, sem kallar á frekari íbúafjölgun ásamt betri innviðum sem hafa þann tilgang að gera svæðið að einu atvinnu- og þjónustusvæði. En samt búa Austfirðingar við þá staðreynd að þungaflutningar, sem eru lykilforsenda mikilvægrar verðmætasköpunar landshlutans, eiga erfitt um vik. Það er alvarleg staða og mikilvægt að þingmenn kjördæmisins geri sér fulla grein fyrir alvarleika málsins og beiti sér að fullu fyrir mikilvægum samgönguframkvæmdum til að tryggja örugga þungaflutninga innan Austurlands sem og á milli landshluta.
Sú mikilvæga innviðauppbygging er brýn og mun leysa úr læðingi enn frekari kraft í austfirsku atvinnulífi. Aðeins brotabrot af þeirri gríðarlegu verðmætasköpun sem fram fer á Austurlandi þarf til að fara í þá öflugu innviðauppbyggingu.
Umfangsmikil innviðauppbygging, aukning á öflugri alhliða fjarþjónustu í heimabyggð og að spyrna gegn auknum landsbyggðarskatti eru nú okkar stærstu sameiginlegu hagsmunamál. Mikilvægt er því að við stígum áfram fram af krafti, sameinuð, bæði stjórn SSA og íbúar Austurlands, landshlutanum og Íslandi öllu til heilla.
Með ósk um gleðilegt nýtt ár.
Höfundur er formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.