Góð samvinna við íbúa skiptir lögreglu höfuðmáli
Um áramót staldra ég gjarnan við og lít yfir farinn veg. Síðasta ár var krefjandi fyrir lögreglu og íbúa umdæmisins með mörgum stórum og vandasömum málum er upp komu. Þakklæti er mér þar efst í huga fyrir ósérhlífið starf lögreglumanna og dugnað sem og fyrir samstarf og samvinnu við íbúa sem hvergi bar skugga á.Árið 2024 einkenndist af góðu samtali og samstarfi milli ólíkra aðila á Austurlandi. Lögreglan hefur til að mynda að heimsótt marga af stærstu vinnustöðum umdæmisins og mun halda því áfram. Þar hefur meðal annars verið rætt um hvernig þétta megi og efla samstarfið. Skólar og félagsmiðstöðvar hafa og verið heimsóttar.
Öruggara Austurland er samstarfsvettvangur á Austurlandi sem lögreglan leiðir en því er ætlað að efla og styðja við frekari þróun á svæðisbundnu samstarfi um aðgerðir gegn ofbeldi. Að þessu koma m.a. félags- og sérfræðiþjónustur sveitarfélaganna, barnaverndaryfirvöld, heilbrigðisþjónusta og skólastjórnendur auk lögreglu. Á þessum vettvangi er fundað reglulega um þau málefni og áherslur sem brýnt þykir að vinna að.
Á samráðsfundi sem haldinn var í október 2024 var ákveðið að leggja áherslu á vinnu við málaflokkinn um heimilisofbeldi en tilgangur þess er auka vitund um hann og ekki síður að slípa samstarf milli þeirra er að slíkum málum koma. Þar er einnig unnið að ýmsum öðrum málum svo sem að forvörnum þegar kemur að hatursorðræðu og netbrotum. Þá er leiða leitað til að auðvelda og hvetja börn og ungmenni til að skýra frá ofbeldi sem þau hafa orðið fyrir og reyna þannig að aðstoða og ekki síður koma í veg fyrir ofbeldisbrot. Einnig er unnið að því á þessum vettvangi að efla geðheilbrigðisþjónustu í umdæminu og upplýsa og aðstoða aldraða sérstaklega, til að mynda varðandi netbrot og fleira.
Ný aðgerðastjórn og rýmingakort auðvelda aðgerðir
Mikil vinna hefur verið í gangi hjá lögreglu og Almannavarnanefnd Austurlands þegar kemur að almannavörnum en nú nýverið voru samþykkt og kynnt ný rýmingarkort. Kortin byggja á stafrænum grunni og munu auðvelda og einfalda aðgerðir ef til rýmingar kemur. Í upphafi árs 2024 var opnuð ný og fullbúin aðgerðarstjórn fyrir Austurland sem bætir verulega aðstæður ef almannavarnarástand skapast og hefur hún þegar sannað gildi sitt.
Á árinu fékk embættið nýja landamærabifreið sem nýtist í landamæraeftirlit en störf lögreglu þegar kemur að landamærum hafa aukist verulega með fjölgun skemmtiferðaskipa til umdæmisins, einkaflugvéla erlendis frá sem lenda á Egilsstaðaflugvelli og fleira. Bifreiðin er mikið framfaraskref þegar kemur að þeim málum í umdæminu.
Þakkir til Austfirðinga
Í umdæmi lögreglunnar á Austurlandi búa rúmlega 11.000 manns á um 15% af flatarmáli landsins. Umdæmið er víðfeðmt og strjálbýlt sem hefur í för með sér áskoranir. Árið hefur sem fyrr segir einkennst af stórum og erfiðum málum sem hafa verið umfangsmikil í rannsókn fyrir lögreglu en ekki síður hafa þau reynt á íbúa sem hafa sýnt ótrúlega elju, æðruleysi og dugnað. Samstaða allra skiptir þarna máli og fyrir hana er ég þakklát.
Lögreglan er þjónustustofnun og því eiga boðleiðir að vera opnar. Hún er alltaf tilbúin í frekara samtal og samvinnu við íbúa. Ábendingum og tillögum að frekara samstarfi er tekið fagnandi.
Þegar ég lít til baka er mér þakklæti efst í huga fyrir að hafa fengið tækifæri til að þjóna því öfluga samfélagi sem hér er.
Höfundur er lögreglustjóri á Austurlandi