Hvers virði erum við?

Á þessu ári eru 40 ár síðan ég innritaðist í Kennaraháskóla Íslands. Nánast hálf mannsævi. Þetta þótti ekki skynsamleg ákvörðun! „Ætlarðu að vera kennari? Það er nú svo leiðinlegt og vanþakklátt starf.“ Ég lét það ekki hindra mig enda standa kennarar að mér í allar ættir og kannski er kennslan mér í blóð borin.

Eftir 35 ár er starfsvettvangur minn enn í skóla, nú sem deildarstjóri en í gegnum tíðina sem kennari og ýmislegt annað tilfallandi. Hvers virði er menntun mín og reynsla? Það er spurningin sem félagar í KÍ spyrja um þessar mundir. Ungt fólk sem fer í kennaranám fær ekki mikla hvatningu úr umhverfinu, frekar en ég fyrir 40 árum. „Ætlarðu að verða kennari? Er það ekki rosalega erfitt og illa borgað?“ Á sama tíma eru heilmiklar kröfur gerðar til þess að í skólum sé gróskumikið faglegt starf. Því það er þrátt fyrir allt skilningur meginþorra fólks að það skipti máli að börn fái góða kennslu í skólum.

Samfélagið á í einhvers konar ástar-haturssambandi við skóla og kennara. Það eru gerðar miklar kröfur til þeirra sem sinna kennslu; þau eiga að vera fagleg, fjörug, framúrskarandi og skila börnunum frá sér þannig að þau séu fær um að takast á við áskoranir lífsins. En það er líka auðvelt að kenna kennaranum um ef barninu gengur ekki vel; þá er kennarinn að bregðast. Og þá er kennarinn ásakaður um að standa sig ekki, mismuna nemendum, sýna ekki sanngirni, vera ekki faglegur og það má hunsa þessa manneskju í búðinni eða hallmæla henni á samfélagsmiðlum.

Hvers virði er kennari? Ungur umsjónarkennari, með fimm ára menntun og þar með full réttindi fær 686.444 kr. á mánuði í brúttólaun og 473.088 kr. útborgað. Þessi einstaklingur hefur árs starfsreynslu í grunnskóla og nokkurra ára reynslu af öðru skólastigi. Eldri kennari sem hefur full réttindi, 18 ára kennslureynslu, viðbótarnám og fjölda námskeiða hefur 753.591 kr. í brúttólaun og útborgaðar 517.427 kr. Þessir kennarar eru báðir þeim kostum gæddir að láta velferð nemenda sinna skipta sig mjög miklu máli og þeir leitast báðir við að styðja og styrkja börnin sem þeir annast á sem mestan og bestan hátt. Þetta eru kennarar sem hlægja og gráta með nemendum sínum, fagna með þeim í sigrum þeirra.

Hvers virði er það að í skólum séu kennarar sem hafa menntað sig til starfsins og leggja sig fram í að styðja nemendur sína til þroska og þátttöku í samfélaginu? Hvað er samfélagið tilbúið til að greiða fyrir þessi störf? Er ósanngjörn krafa að kennarar fá sambærileg laun og fólk sem hefur sambærilega menntun? Er á einhvern hátt hægt að réttlæta að kennarar hafi ekki sambærileg laun og viðmiðunarhópar?

Ég hef ekki starfað sem kennari vegna þess að ég hafi fengið há laun. Ég hef unnið sem kennari vegna þess að mér finnst ungt fólk skemmtilegt og það er gaman að vera með því. Mér finnst gaman að vinna í skóla þar sem enginn dagur er öðrum líkur og starfsfólkið er ávallt viðbúið að bregðast við óvæntum aðstæðum, svolítið eins og á bráðamóttöku. En það lifir enginn af gleðinni einni saman og 500 þúsund í vasann dugar skammt til að greiða fyrir húsnæði, lán og allt annað sem fólk þarf til framfærslu. Við erum ekki að biðja um að fá milljón á morgun! Við biðjum um sanngjörn laun sem endurspegla þá ábyrgð sem við berum í vinnunni okkar. Það er allt og sumt.

Höfundur er kennari síðan 1990

launasedill kennari mulathing jan2025

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.