Bætt aðgengi allra í Fjarðabyggð
Mikilvægt er að gera betur í aðgengismálum í Fjarðabyggð. Að mínu mati er aðgengi fatlaðra í sveitarfélaginu verulega ábótavant og áríðandi er gera þar bragarbót.Þjónusta við fatlaða á að miða að nauðsynlegum stuðning svo þeir geti verið virkir þátttakendur í samfélaginu. Með jöfnu og góðu aðgengi að þjónustu og mannvirkjum tryggjum við grundvallar réttindi fatlaðs fólks. Hlutverk okkar allra er að huga að því að öllum sé gert kleift að lifa sjálfstæðu lífi og þátttaka í samfélaginu sé óháð aðstæðum.
Þetta felur í sér að við sköpum fötluðum skilyrði til sjálfstæðs lífs með góðu aðgengi að mannvirkjum, aðstöðu, þjónustu og úrræðum sveitafélagsins. Þetta þýðir jafna rétt allra til að komast í sund, eiga greiðan aðgang að fræðslustofnunum, göngustígum, náttúruperlum, söfnum og svo mætti áfram telja.
Hryggilegt er að fatlað fólk hafi ekki greiðan aðgang að mannvirkjum í Fjarðabyggð svo sem sundlaugunum. Úr þessu þarf að bæta.
Ég vil sjá átak í að bættu aðgengi fatlaðra í sveitafélaginu, í sundlaugum, á útivistarsvæðum og öðrum mannvirkjum. Fatlað fólk á að eiga greiðan aðgang að almennri þjónustu ríkis og sveitarfélaga. Fjarðabyggð hefur sem öflugt sveitarfélag og hefur alla burði til að standa sómasamlega að aðgengismálum. Hefjum róttækar aðgerðir og höfum þetta í lagi.
Höfundur er fíkniráðgjafi og súkraliði sem skipar 14. sætið á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð