Bókavaka Safnahússins á fimmtudag
Árleg bókavaka Safnahússins á Egilsstöðum verður næstkomandi fimmtudagskvöld og hefst kl. 20. Fimm Austfirðingar lesa þar úr ritum sínum, nýútgefnum.
Eftirtaldir höfundar/aðstandendur bóka lesa úr verkum sínum:
- Smári Geirsson (ritstjóri) – Þræðir. Hrafnkell A. Jónsson foringi og fræðimaður
- Ingunn Snædal – Í fjarveru trjáa – vegaljóð
- Hálfdán Haraldsson – Norðfjarðarbók. Þjóðsögur, sagnir og örnefnaskrár
- Rannveig Þórhallsdóttir – Ég hef nú sjaldan verið algild. Ævisaga Önnu á Hesteyri
- Guðjón Sveinsson – Litir og ljóð úr Breiðdal
Einnig verður fjallað um rúman tug annarra austfirskra bóka sem komu út á árinu.
Aðgangur ókeypis og kaffi á könnunni
Gert er ráð fyrir að dagskránni ljúki um kl. 21.30