Blessaður

Blessaður ert þú sem ekið hefur Öxi, -hvernig sem viðrar! Fegurðin er ómælanleg. Auk þess er þetta 60 km stytting á Hérað miðað við Fjarðaleiðina. Það takmarkaða fé sem í upphafi var veitt í gerð vegarins upp úr Berufirði hefur verið listilega nýtt, jarðröskun í lágmarki og einstök upplifun.

Við endanlega gerð þessa vegar verður að vanda sig vel, valda sem minnstri röskun en gera öruggan veg sem er oftast fær. Í botni fjarðarins og uppi á heiðinni ætti að vera forgangsmál að ljúka hefðbundinni þjóðvegsgerð.

Öxi er dæmi um sífelldan ágreining Austfirðinga um allt. Fjarðabyggð fannst að öll áhersla ætti að vera á ströndina, þjóðveginn um Austfirði. Öxi væri engin lausn. Á Djúpavogi vildu auðvitað allir styttingu í nálægustu miðstöð og á Héraði var styrking Egilsstaða sem miðpunkts Austurlands mikið kappsmál. Breiðdælingar voru á móti þessu öllu því Breiðdalsheiði yrði í öllu falli útundan og þar með yrði minni snjómokstur frá Vegagerðinni í sveitinni! Seyðfirðingar og Borgfirðingar fylgdu svo Héraði af hliðarlínunni og Vopnfirðingar skiptu sér sem fyrr bara af sínum málum.

Allir sem sagt á móti öllum og ekkert gert áratugum saman þar til ráðherra sker á hnútinn og þetta er að fara á besta veg. Eins og við hefðum sjálf átt að sjá fyrir löngu. Ég tel að valdleysi samtaka sveitarfélaga á Austurlandi sé stór orsakavaldur í tregðu Austfirðinga til sátta. Allt sem samþykkt var á þingum SSA voru tilmæli eða ábendingar til stjórnvalda. Því fylgdi aldrei vald til að framkvæma og þess vegna þurfti aldrei neina niðurstöðu. Í sameinuðu sveitarfélagi á Austurlandi horfir þetta allt öðru vísi við, þar eru samþykktirnar framkvæmdar og því þarf niðurstöðu og sátt við afgreiðslu mála.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar