Eldisþorski í Berufirði slátrað milli jóla og nýárs

Fyrirhugað er að slátra á næstunni um 50 tonnum af eldisþorski hjá fiskeldi HB Granda í Berufirði. Byrjað verður að slátra þorski á milli jóla og nýárs og lokið verður við slátrunina eftir áramótin. Þorskurinn verður unninn hjá fiskiðjuveri félagsins á Akranesi í fersk flakastykki og send með flugi á markað erlendis. Kristján Ingimarsson, forstöðumaður fiskeldis HB Granda á Djúpavogi, segir á vef HB Granda, að slátrað verði sunnudaginn 28. desember og mánudaginn 29. desember nk. og sá þorskur fari til vinnslu á Akranesi á mánudag og þriðjudag. Þráðurinn verði síðan tekinn upp að nýju eftir áramótin.

,,Þessi þorskur varð til í klaki á Stað við Grindavík á vegum Icecod á árinu 2005 og kom hingað sem 100 gramma seiði vorið 2006 og þá var hann settur í sjókvíar. Stærð hans er nú um 2,3 kg að jafnaði,” segir Kristján en hann upplýsir að þorskurinn hafi vaxið ágætlega á þessu ári. Tvær kynslóðir eldisþorsks eru nú í eldi í sjókvíum HB Granda í Berufirði.

Síldarfrysting Hb Granda á Vopnafirði í uppnámi en þó full vinna í fiskiðjuverinu

,,Þetta er auðvitað eitthvað sem við þurftum síst á að halda um þessar mundir, sama hvort sem það er fyrirtækið, starfsfólkið eða þjóðarbúið,” segir Magnús Róbertsson vinnslustjóri HB Granda á Vopnafirði en sýkingin í íslenska sumargotssíldarstofninum hefur gjörbreytt öllum áformum um frystingu á síld til manneldis í fiskiðjuverinu á Vopnafirði.Síld hefur ekki verið fryst á Vopnafirði síðan um síðustu mánaðamót. Markmiðið var að frysta um 6.300 tonn af síldarafurðum hjá fyrirtækinu og halda síldarvinnslunni gangandi fram í janúarmánuð en þegar frystingin var stöðvuð var búið að frysta rúmlega fjórðung þess magns eða um 1.700 tonn. Þótt þetta séu vissulega mikil vonbrigði og að verðmætasköpunin hafi ekki orðið með þeim hætti sem efni stóðu til, þá er fullri atvinnu haldið uppi í fiskiðjuverinu á Vopnafirði. Sú vinna vegur þó hvergi nærri jafn þungt og vaktavinnan í síldarfrystingunni og því er ljóst að fiskvinnslufólkið verður fyrir umtalsverðri tekjuskerðingu vegna þess hve síldarvertíðin varð endaslepp að þessu sinni.,,Við erum að vinna afskurð af frystitogurunum og eigum birgðir til nokkurra vikna. Þá ættum við að fá meira hráefni nú þegar frystitogararnir koma inn fyrir hátíðarnar,” segir Magnús en þess má geta að afskurðurinn er léttsaltaður og fer aðallega á Spánarmarkað. Nú bíða menn á Vopnafirði og víðar eftir því að loðnan gefi sig til og Magnús segir að það þýði ekkert annað en að vera bjartsýnn og vonandi verði hægt að hefja frystingu á loðnu fyrir Austur-Evrópumarkaðinn upp úr miðjum janúar.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar