Fölsk loforð í boði HMS

Jæja, hvað er að frétta af næstu úthlutun hlutdeildarlána HMS til fyrstu kaupenda? Einhverja hluta vegna benda allir hver á annan og enginn hefur svör. Og því spyr ég hér opinberlega – hvað er að frétta? Getur fjármálaráðherra, innviðaráðherra eða forstjóri HMS svarað?

Hlutdeildarlán er lánaúrræði sem stjórnvöld settu á laggirnar fyrir fyrstu kaupendur, til að auðvelda fólki að komast inn á húsnæðismarkaðinn. Í fyrstu voru ekki margar umsóknir vegna þessara lána, þá aðallega vegna þess að íbúðir sem voru þá í byggingu féllu ekki undir skilyrðin sem voru sett, því bæði íbúðin þurfti að uppfylla ákveðin skilyrði og líka lántakandinn (kaupandinn). Þetta breyttist síðan, þar sem margir byggingaraðilar kusu að hanna íbúðir þannig að þær gætu fallið undir skilyrði um hlutdeildarlán og þannig gætu nýjar íbúðir orðið valkostur fyrir fyrstu kaupendur. Að mörgu leyti eru þessi lán góður valkostur fyrir marga fyrstu kaupendur.

Í júní á þessu ári voru samþykkt fjáraukalög til að HMS gæti afgreitt þær umsóknir sem liggja fyrir. Núna í byrjun september er ekkert að frétta.

Til eru dæmi þess að byggingarfyrirtæki voru búin að fá samþykki fyrir íbúðum áður en framkvæmdir hófust, með vilyrði fyrir lánveitingu til væntanlegra fyrstu kaupenda þegar húsið væri upprisið og fullbúið. En svo þegar húsið er uppkomið – þá er lokað fyrir lánaumsóknir. Þannig að HMS og stjórnvöld eru að búa til fölsk loforð til byggingarfyrirtækja og fyrstu kaupenda. HMS er búin að samþykkja íbúðirnar og staðfesta það með samningum við byggingarfyrirtækin að það verði veitt Hlutdeildarlán á þær íbúðir sem falla undir skilyrðin. Með þennan samning fyrirliggjandi hefjast framkvæmdir. Þegar húsin eru tilbúin – þá er staðan sú að peningurinn er ekki til. Þannig að HMS lofaði of mörgum og peningurinn kláraðist? Er þetta ásættanlegt? Og ekkert heyrist – enginn getur svarað.

Húsnæðisskortur er staðreynd og varla er hægt að hlusta á fréttatíma, öðruvísi en fjallað sé um þau vandamál sem því fylgir. Það er margt ungt fólk sem getur keypt sína fyrstu fasteign með hlutdeildarláni og það eru íbúðir út um allt land, þá sérstalega á landsbyggðinni, að verða tilbúnar til afhendingar. Önnur staðreynd er sú, að margt fólk er að borga háa leigu og jafnvel tvöfalt á við það sem það myndi greiða af húsnæðisláni. Þó það sé efni í annan pistil.

Allir benda hvor á annan og enginn skilur af hverju við erum að glíma við húsnæðisvanda. Fólk bendir strax á sveitarfélögin, en ég vil frekar taka saman vikurnar og MÁNUÐINA sem hið opinbera í heild tekur sér í að „samþykkja-skoða-greina“ gagnvart byggingarfélögum. Tíminn kostar byggingaraðila mest, enda eru þeir flestir nú þegar að greiða háa vexti af framkvæmdalánum og þegar hið opinbera býr bæði til fölsk loforð og tekur sér svo margar vikur við hvert samþykktarviðvik, þá er augljóst að byggingarkostnaður bara hækkar og hækkar vegna aukins fjármagnskostnaðar, jafnvel á fullbúnum íbúðum. Á sama tíma tala menn um „vandann“ tengdum hækkunum á fasteignaverði varðandi verðbólguþróun.

Hver er fíllinn í herberginu? Finnst mönnum þetta kannski bara allt í lagi?

Höfundur er eigandi Byr fasteignasölu.


Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar