Framtíðin ræðst af forsjálni

Nú þegar kosningar nálgast óðum fjölgar gífuryrðum og stórkostlegum loforðum allra framboða. Enginn frambjóðandi er til í að styggja nokkurn mann og fer því fjálgum orðum um ýmis málefni án þess svo sem að lofa nokkru.

Nú er það svo að frambjóðendur vita að það er ekki atkvæðavænt að tala um framtíðina. Það sé auðveldara að selja fólki ýmist skyndilausnir eða jánka bara því sem fyrir er. Til skamms tíma sé betra að tryggja sér sæti um borð í höllu stjórnvaldsins og biðjast afsökunar eftir á.

Ekki misskilja mig, mér finnst það oft góð hugmynd. Ef ég t.d. er sannfærð um að mig bráðvanti nýja byssu eða góða sjósundskó þá er ég sannarlega tilbúin að sannfæra sjálfa mig um að ég geti beðið sjálfa mig afsökunar bara seinna.

En hér erum við að tala um rekstur á heilu samfélagi sem rekið er með fjármunum okkar allra. Það er því ekkert rými fyrir afsakanir eftir á. Loforð eru loforð.

Raunsæi er heldur ekki söluvænt. Oft ógnar það tilveru fólks og jafnvel heilu samfélögunum að heimurinn tekur breytingum. En heimurinn breytist og mennirnir með. Að neita að horfast í augu við það er glapræði og gæti orðið mörgum að falli. Við skulum ekki falla.

Á dögunum var haldinn framboðsfundur á Egilsstöðum þar sem oddviti Pírata ákvað að brjóta upp ansi einsleit svör um öll málefni og víkja að framtíðarhugsunum. Hann gerðist svo djarfur að tala um hluti eins og kjötrækt og landeldi, uppstokkun stofnana og aðrar fantasíur. Kliður í sal og einstaka fuss minnti mig á svipaðar aðstæður úr æsku þar sem framsýnt fólk var talið hálf skrýtið.

Ég man alveg hvað Eymundur í Vallanesi var hæddur í mín eyru fyrir 20 árum síðan. Enginn hæðir hann nú.

Og aftur, ekki misskilja mig, Einar, téður oddviti Pírata í Norðausturkjördæmi, er jú skrýtin skrúfa. Veit meira um Íslendingasögurnar en góðu hófi gegnir og nánast pervertískur áhugi hans á vegagerð og samgöngum getur ært óstöðugan.

En hér kemur að kjarna málsins. Svo er mín skoðun að stærsti vandi stjórnsýslu og pólitíkur er hversu bæði frambjóðendum,og kannski líka kjósendum, er illa við að horfa langt fram. Það er enginn að segja að t.d. kjötrækt taki við á morgunn. Eða að öll göng komi á kjörtímabilinu. En það versta sem hver þjóð getur gert er að huga ekki að áskorunum og breytingum samfélagsins. Mæta þeim tilbúin og undirbúin og gera það svo að það skili sér sem best fyrir allan mannauð. Við skulum ekki falla.

Það er engin lausn að þvælast á milli fólks og fyrirtækja og segja þeim að allt sé gott og engu þurfi að breyta. Til þess er ég ekki hér. Til þess eru Píratar ekki hér.

Verum ekki hrædd við breytingar. Tökum fagnandi á móti þeim. Píratar vilja taka þátt í að aðlaga stjórnsýsluna að þeim og gera hana nýtilega fyrir samfélagið.

Við skulum ekki falla!

Höfundur er kannski alin upp við fornaldarbúskap upp í afdal en afneitar ekki þróun og breytingum.

Höfundur skipar annað sætið á framboðslista Pírata í Norðausturkjördæmi


Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar