Hvar eru þingmenn Norðausturkjördæmis?
Fréttir síðustu daga og vikna af laxeldi á Austurlandi eru miður skemmtilegar.Varðandi Stöðvarfjörð eru gróðahyggjumenn að ráðast inn í samfélagið í annað sinn. Kambaröstin var seld ónefndum aðila, sem fór á endanum með allt í burtu. Skipið var síðar selt til Namibíu. Allir vita framhaldið.
Enn er virðingarleysið gagnvart íbúum algert. Óboðnir aðilar komast nú inn með laxeldi án samráðs við heimamenn. Andmælum og spurningum íbúa er ekki svarað fyrr en leyfið er í höfn. Það er ekki í lagi að koma svona fram við fólk. Við þennan yfirgang er ekki búandi.
Íbúar Stöðvarfjarðar segja engan vafa leika á lífsgæðarýrnun og lækkun fasteignaverðs. En hverjum er ekki sama um íbúana, bara ef græðgimenn Íslands fá sitt í vasann og Norðmenn frí afnot af auðlindum landsins.
Fiskeldi Austurlands (FA) er til húsa á Seltjarnarnesi, seiðaeldi í Þorlákshöfn, laxeldi í Austfjörðum og sláturhús á Djúpavogi. Já vissulega ræður fyrirtækið hvar það hefur aðsetur og slátrar sínum laxi . Á Djúpavogi, gott mál.
Fjarðabyggð kallar eftir jafnari tekjuskiptingu af fiskeldi. Já, það á að láta greiða fyrir auðlindina eins og í Noregi. Nú þurfa íbúar Fjarðabyggðar og Múlaþings að standa saman. Hvar eru þingmenn Norðausturlands? Fáum þá að borðinu. Það þarf að breyta núgildandi lögum og innheimta auðlindagjald af öllu fiskeldi hringinn í kringum landið, hvenær sem það fór af stað, punktur.
Við sveitarstjórnarfólk á Austurlandi vil ég segja. Standið nú öll í lappirnar og leyfið hverjum stað að blómstra á eigin forsendum. Það eru kosningar í vor, auðurinn og framtíðin býr í fólkinu. Hættum að láta græðgina valta yfir okkur.
Varðandi Seyðisfjörð læt ég fylgja mynd af fyrirhuguðu áhrifasvæði fiskeldis í Sörlastaðavík, sem er hér að neðan. Heilu línurnar í Sörlastaðavík eru breidd fjarðarins 985 m(0.53 nl) og 1280 m(0.69 nl). Línur dregnar frá bleiku línunni, sem er sæstrengurinn, eru 463 m(0.25 nl). Það er helgunarsvæði strengsins. Kvíasvæðið má ekki vera þar.
Skyggða svæðið, er 600 m(0.32 nl) út frá landi hvoru megin. Landeigendur eiga 120 m út. Þá eru 480 m eftir fyrir kvíar og akkerisfestingar, en eins og sést á myndinni er þetta langt inni á helgunarsvæði strengsins. Auk þess loka þessir 600 m nánast siglingaleiðinni. Norðan þeirra eru bara 385 m upp í fjöru. Lítið gagn er í góðri höfn ef siglingaleiðinni er lokað fyrir stórum skipum.
Kvíar komast ekki fyrir, hvorki í Sörlastaðavík né Selstaðavík. Auk þess er Selstaðavík á hættusvæði C vegna snjóflóða. Það kemur skýrt fram á bls. 18 í skýrslu Skipulagsstofnunar, en þar segir: „kvíarnar í Selstaðavík standast ekki þetta viðmið.“
Skálanes er náttúruparadís með mikið fuglalíf. Þar hefur verið byggð upp ferðaþjónusta ásamt menningar- og fræðslusetri. Þar eru nokkur störf í mikilli hættu ef af fiskeldi verður. Gleymið þessu.
Ég treysti á að talnaglöggt fólk hjá ríkisstofnunum horfi ekki fram hjá öllum þessum staðreyndum.
Fyrirsögn á frétt frá 17. mars 2022: „Afdrif fiskeldis í Seyðisfirði gæti haft áhrif á uppbyggingu á Djúpavogi“
Sveitarstjórnarfólk í Múlaþingi. Kynnið ykkur málið frá öllum hliðum. Við að missa skemmtiferðaskip tapast t.d. hafnargjöld og tekjur við farþegaflutninga o.fl. Auk þess sem fiskeldið hefur almennt neikvæð áhrif á alla ferðaþjónustu. Á Seyðisfjörður virkilega ekki að fá að njóta sín?
Nú spyr ég FA. Er svona mikil þörf fyrir þessi 10.000 tonn, sem sótt er um í Seyðisfirði, að fyrirtækið stendur og fellur með þeim?
FA hefur ekki svarað spurningum um fjölda nýrra heilsársstarfa, sem verða til á Seyðisfirði.
Treystir fyrirtækið sér ekki til að bera ábyrgð á þeirri tölu?
Hvenær verður ýtt á fóðrunartakkann frá Noregi eða annars staðar frá?
Vill FA bera ábyrgð á að hálfloka siglingaleiðinni um Seyðisfjörð?
Ætlar FA að bera ábyrgð á að Faricestrengurinn, ein af þremur lífæðum samskipta Íslands við umheiminn, sé settur í hættu? Sjá bls. 28 í skýrslu Skipulagsstofnunar.
Svör óskast á Austurfrétt.
Þingmenn Norðausturlands. Á bara að þiggja atkvæði og horfa svo í aðra átt? Standið nú með fólkinu ykkar.
Höfnum stríði höfum frið