Hvernig útvarpsgjaldið verður að tvískatti
Ég hélt að sú meginregla gilti að einstaklingurinn skyldi ekki greiða sama skattinn tvisvar. Eftir yfirlegu mína á útvarpsgjaldinu, sem við öllum borgum, hef ég þó farið að spyrja spurninga um hvort það brjóti í bága við þessa reglu.Ég og konan mín stöndum að baki litlu einkahlutafélagi. Það er engin starfsemi í félaginu sem stendur og VSK-númerið er lokað. Samt fær það reglulega reikninga frá innheimtumönnum ríkissjóðs, eins og fleiri fyrirtæki.
Reikningarnir eru oftast óljósir, á þeim stendur ekki annað en þeir séu fyrir þing- og sveitarsjóðsgjöld. Í þann flokk falla meðal annars tekjuskattur, útsvar, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, fjármagnstekjuskattur, slysatrygging við heimilisstörf, auðlegðarskattur, búnaðargjald, ofgreiddar barna- og vaxtabætur og að sjálfsögðu útvarpsgjaldið.
Að undanförnu hefur verið gengið í að krefja eigendur félaga um skráningu þar sem safnað er svokölluðum raunverulegum eigendum. Skattayfirvöldum ætti því að vera ljóst hverjir eigendur fyrirtækisins eru.
Í okkar tilfelli höfum við tvö greitt okkar útvarpsgjald, samtals 36.000 krónur. Við teljum okkur þar með hafa staðið skil á útvarpsgjaldinu, enda horfir kennitalan hvorki né hlustar á útvarp eða sjónvarp. Við vitum að við erum ekki ein þeirrar skoðunar.
Við höfum spurt hvort tvöföld skattheimta sé heimil á Íslandi en flestir sem við tölum við yppa öxlum. Innheimtumenn ríkissjóðs segja að svona komi þetta frá skattinum. Hjá þingmönnum í fjárlaganefnd er líka fátt um svör eins og þeim sé ókleift að svara þessari grundvallarspurningu hvort tvöföld skattheimta sé heimil.
Er einhver þarna úti sem veit betur?