Landbúnaðarháskóla Íslands hafa að undanförnu borist margar fyrirspurnir um skólavist í byrjun nýs árs. Yfirvöld skólans hafa ákveðið að bregðast við aðstæðum og opna á umsóknir um nám sem hæfist í janúar. Umsóknarfrestur er til 5. desember.
Þá hefur LbhÍ hleypt af stokkunum nýju verkefni, sem hefur verið nefnt SPROTINN – Atvinnusmiðja. Verkefnið miðar beint að nýsköpun í atvinnulífi landsins með því m.a. að bjóða fram aðstöðu og aðstoð hjá LbhÍ til þess að þróa hugmyndir í átt að atvinnustarfsemi.BS og MS námOpið fyrir umsóknir í allar námsbrautir – fjarnámslausnir mögulegar.STARFSMENNTANÁMMjög hagnýtt nám í boði – mögulegt að taka einstök námskeið eða innritast í fullt nám - fjarnámslausnir.ENDURMENNTUNMikill fjöldi námskeiða – hægt að taka einstök námskeið eða námskeiðaraðir.SPROTINN - Atvinnusmiðja
LbhÍ er nú að hleypa af stokkunum nýju verkefni sem miðar beint að atvinnusköpun í landinu. Markmiðið er að vinna með fólki og koma hugmyndum í framkvæmd. Sjá nánar á www.lbhi.is
Hver umsókn verður metinUmsækjendur munu innritast í hafið nám. Vinsamlega hafið samband við kennsluskrifstofu um mögulega framvindu námsins. UMSÓKNARFRESTURUmsóknarfrestur vegna náms á vormisseri er til 5. desember. Umsóknareyðublöð og allar frekari upplýsingar eru á heimasíðu skólans. www.lbhi.is
Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.