Leiðari Austurgluggans 26. tbl. 2008 - 3. júlí
Daðurskýrslan
Hún þakkaði fyrir
með stuttum kossi. Ekki núna, kannski næst. Við höfðum setið allt kvöldið og
daðrað. En við fórum heim hvort í sínu lagi.
Skýrsla
norðausturnefndar forsætisráðherra er elduð eftir svipaðri uppskrift. Mönnum var
gefið undir fótinn í fimm nafngreindum sveitarfélögum á Austurlandi og í
Þingeyjasýslum og að tekið yrði undir frumkvæði heimamanna.
Heimamenn lögðu í
mikla vinnu við að útbúa umsóknir sínar. Þeir höfðu margir stutt við
stóriðjuframkvæmdir en lítinn ávöxt hlotið af þeim. Þegar röðin kom að þeim var
dyrunum lokað og sagt að veislan væri búin.
Það var búið að
taka af borðunum áður en þeir settust að þeim.
Og engar leifar.
Ráðherrar klipu í
austfirska sveitarstjórnarassa í vetur með yfirlýsingum í skálarræðu. Töluðu um
frumkvæði heimamanna, um hversu miklu hugmyndir þeirra gætu breytt.
Af milljónunum
tvö hundruð sem nefndin úthlutaði fóru 58 norður, 74 í verkefni í fimm
sveitarfélögum á Austurlandi sem heimamenn áttu frumkvæðið að. Sextíu og sjö
milljónir fóru í verkefni ríkisins sem verður stýrt af Egilsstöðum.
Til dæmis að eyða
pening í að stofna nýsköpunarmiðstöð í eina landsfjórðungnum sem það var eftir.
Formaður
nefndarinnar beit höfuðið af skömminni þegar hann fór í flug eftir klukkutíma
af fundinum. Hann sagði ekki af hverju. Hversu góðar ástæður sem hann kann að
hafa haft var framkoma hans óásættanleg. Þegar þú ert ráðinn til verkefnis
fylgirðu því alla leið. Sérstaklega sem formaður. Kannski endurspeglaði
brottför hans raunverulega hversu mikinn áhuga menn höfðu á verkefninu?
Nefndin daðraði
við sveitarfélögin í hálft ár en hún fór ekki með þeim heim.