Lýðræði, mannauður og bæjarskrifstofan í Fjarðabyggð
Með kröftugt málefnastarf að vopni leggjum við frambjóðendur Sjálfstæðisflokks í Fjarðabyggð áherslu bætt og lýðræðislegra samfélag. Við fullyrðum að ein af grunnstoðum íbúalýðræðis sé upplýsingaflæði og virkt samráð við íbúa.Við höfum talað fyrir mikilvægi aukins gagnsæis í rekstri og ákvarðanatöku. Í því samhengi er mikið hagræði í að nýta framþróun á sviði upplýsingatækni.
Fjarðabyggð er vaxandi fjölkjarnasveitarfélag. Sú fjölbreytni sem liggur í byggðakjörnunum sjö er styrkur sveitarfélagsins. Þörf er á að efla markaðsstarf sveitarfélagsins og kynna það fyrir mögulegum íbúum, landsmönnum, fjárfestum og hagaðilum. En fjölbreytnin er víða: Innflytjendur og nýir íbúar auðga menningu og efnahag. Nýta þarf mannauð, þekkingu og reynslu innflytjenda sem vilja búa og starfa hér og innleiða þau í samfélagið með fræðslu.
Sjálfstæðisflokkurinn í Fjarðabyggð vill:
• Átak í kynningu sveitafélagsins og markaðssetningu þess.
• Endurverkja „Lykill að Fjarðabyggð“ og bjóða aðflutta velkomna á svæðið. Sérstaklega verður horft til innflytjenda og markvissar innleiðingu þeirra í samfélagið þannig að allir íbúar verði strax hluti samfélagsins.
• Koma á viðtalstímum bæjarfulltrúa í öllum byggðakjörnum.
• Halda reglulega íbúafundi í byggðakjörnum.
• Virkja íbúalýðræði og veita íbúum aukið aðgengi að ákvarðanatöku og forgangsröðun í sínu nærsamfélagi.
• Innleiða smáforrit fyrir samskipti við íbúa þar sem allar upplýsingar og samskiptaleiðir verða aðgengilegar.
• Gagnsæi með opnu bókhaldi sveitarfélagsins.
• Efla þjónustu við íbúa með annað móðurmál. Efla þýðingar og auka túlkaþjónustu.
• Kynna nýja vefsíðu Fjarðabyggðar með aðgengilegum upplýsingum.
• Koma á störfum án staðsetningar innan sveitarfélagsins og gefa starfsfólki þess aukin kost á því að vinna í heimabyggð.
Við erum bjartsýn á Fjarðabyggð vaxtar og styrks. Gagnsæi og íbúalýðræði eru þar mikilvægt veganesti.
Það verður kosið 14. maí n.k.
Jóhanna Sigfúsdóttir, viðskiptafræðingur
Kristinn Þór Jónasson, verkstjóri
Höfundar skipa 4. og 2. sætið á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð.