Mokstur á Oddsskarði
Snjóflóð féll síðastliðna nótt á veginn um Oddsskarð Norðfjarðarmegin og lokaði honum. Unnið var að því í morgun að ryðja flóðinu burt með hjólaskóflu og tók drjúga stund að moka leið gegnum snjómassann. Oddsskarð er enn ófært og er unnið að mokstri.Mokstur er hafinn á Vopnafjarðarheiði og á Möðrudalsöræfum. Fjarðarheiði er opin en þar er þæfingur. Þæfingur, hálka og snjóþekja er á öðrum leiðum á Austurlandi. Breiðdalsheiði er ófær. Vegfarendum er bent á að kynna sér ástand vega á vegagerdin.is.