Nagladekk framundan

Rétt er að minna ökumenn á Austurlandi á að nú er runnin upp tími nagladekkja. Flestir þeir sem reglulega keyra um fjallvegi eru reyndar þegar komnir á slík dekk. Hált var á fjallvegum á Austurlandi í dag, og virðist ljóst að vetur konungur er í það minnsta ekkert að yfirgefa okkur í bráð.

 

Meðfylgjandi mynd var tekin undir Grænafellinu í Reyðarfirði í dag. Bíllinn mun hafa lent utanvegar á föstudag og þurfti víst ekki hálkuna til.bill_utanvegar_graenafell.jpg

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar