Nýir þingmenn Austfirðinga?
Mikil gleði ríkti á kosningaskrifstofu Samfylkingarinnar á Egilsstöðum í kvöld, þegar ljóst varð að Jónína Rós Guðmundsdóttir yrði líklega þingmaður norðausturkjördæmis ásamt þeim Kristjáni L. Möller og Sigmundi Erni Rúnarssyni. Þau atkvæði sem talin hafa verið benda til að Samfylkingin sé að vinna stórsigur í kosningunum. Aðrir splunkunýir þingmenn kjördæmisins gætu orðið Sigmundur Ernir Rúnarsson, Samfylkingu, Björn Valur Gíslason fyrir Vinstri græna og Tryggvi Þór Herbertsson fyrir Sjálfstæðisflokk.
Jónína Rós Guðmundsdóttir, líklegur þingmaður Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi, á kosningaskrifstofunni á Egilsstöðum í kvöld.
Þuríður Backman fylgist með fyrstu tölum í kosningasjónvarpi.
Frá kosningavöku Framsóknarflokksins á Egilsstöðum í kvöld.