Nær sólin að skína á þjóðina alla á ný?
Karólína Þorsteinsdóttir skrifar:En þó að fjöllin séu tignarleg og veki athygli, skyggja þau ansi mikið á sólina. 18. febrúar skín sólin yfir allan bæinn eftir að hafa ekki sést í tvo og hálfan mánuð og hvílík upplifun; eftir alla skugga vetrarins skín sólin á ný.
Ég kem af Suðurlandi. Þar þarf ekki að kvarta yfir sólarleysi, því þar vaknaði ég alltaf við morgunsólina. Kannski er það einmitt þess vegna sem ég nýt sérstaklega þessa fyrsta sólardags og fyllist gleði þegar ég sé hana koma, Ég hef fylgst með henni marga daga áður, þegar hún er að klifra niður hlíðarnar og mér finnst það nánast fullkomnun þegar hún skín yfir allan bæinn og sólinni er fagnað. Þá eru bakaðar sólarpönnukökur sem eru seldar til styrktar Viljanum, íþróttafélagi fatlaðra á Seyðisfirði. Síðan 18. febrúar hafa verið margir sólardagar, snjórinn hefur hopað úr háu fjöllunum og það stirnir á hann þegar sólin skín.
Bjart mannlíf
Þetta á ekki að vera annáll en ég verð nú samt að segja frá því merkilegasta sem hefur skeð síðan síðast. Skíðafólkið fékk snjóinn og æfir mikið í samstarfi við Egilsstaði, það er svo fjölbreytt og stórt skíðasvæði hérna að það gæti orðið það besta á landinu, ef til væru peningar til að byggja það enn betur upp. Svo ég fari á hundavaði yfir allt sem hefur skeð, þá hefur leikfélagið í samstarfi við skólann komið af stað unglingaleikhóp sem er þátttakandi í Þjóðleik og setti upp nýverið einþáttunginn Ísvélin eftir Bjarna Jónsson, Viskubrunnur, spurningakeppni 9. Bekkjar, þar sem öll helstu fyrirtæki bæjarins fá að sýna hvað þau geta, er einnig nýafstaðin. Ekki má gleyma Listaháskólanum sem kom með sex útskriftarnema og tvo erlenda sem unnu verkefni. Þau koma hingað allslaus með hugmyndir í kollinum sem þau vinna svo úr og það kemur margt frumlegt þar fram. Þetta var skemmtilegur hópur og þar sem þau koma alveg allslaus fór heill dagur í að veiða í matinn. Það var mikil lífsreynsla fyrir þau að fara út á sjó og veiða fiskinn, koma með hann í land og matreiða fiskibollur. Þetta er árlegur atburður og gífurleg vinna lögð í verkefnin með aðstoð heimamanna sem þau fá gjarnan efnið hjá. Mér finnst alltaf styttast í sumarið þegar þessir krakkar koma og þegar Norröna byrjar reglulegar siglingar á milli Íslands og hinna Norðurlandanna.
Erfið barátta
Þó að sólin hækki á lofti og við finnum fyrir vorinu sem er að koma, er ekki mikil breyting á stöðu landsins eftir bankahrunið. Það er svo ótrúleg saga sem við höfum svo oft heyrt af undanfarið og er áreiðanlega mjög dökk mynd. Við heyrum á hverjum einasta degi þegar helstu spekingar landsins koma fram og spá í framtíðina og flestir segja að Íslendingar séu svo vanir að berjast við náttúruhamfarir að þeir bjargi þessu eins og venjulega. Það verður áreiðanlega erfitt verkefni þó það verði nú ekki eins ljótt og hjá Spaugstofunni þegar Hólminn hvarf í sjó. Þetta verður örugglega erfið barátta fyrir landið og fyrir fólkið sem ekki tíndi saman milljarðana og flúði land. Ég sé fyrir mér unga fólkið sem missir vonina og trú á velgengnina og öll gæði heimsins og ég sé fyrir mér fólkið sem er búið að safna, með venjulegri vinnu, fyrir eignum til að eiga til elliáranna en sem eru svo bara horfnar. Ég sé fyrir mér menntafólkið sem hefur ætlað sér stóra framtíð með menntun, en því hefur alltaf verið sagt að menntunin sé grundvöllur góðrar framtíðar, en nú virðist fokið í flest skjól. Hvert stórfyrirtækið af öðru hefur farið á hausinn og atvinnuleysi er orðið geigvænlegt. Menn sem hafa verið bjartsýnir og byggt missa nú íbúðir sínar.
Birtir á ný?
Gleðilegt sumar.