Náttúru- og menningararfur í öndvegi
NEED, Northern Environmental Education Development Project, er fjölþjóðlegt samstarfsverkefni um þróun náttúruskólastarfs, rannsóknarmiðaðrar umhverfismenntar, fullorðinsfræðslu um sjálfbæra þróun og uppbyggingu fræðslutengdrar ferðaþjónustu í grannbyggðum þjóðgarða.
Miðpunktur verkefnisins á Íslandi er Vatnajökulsþjóðgarður og nú er búið að mynda hóp á Austurlandi sem er að fara af stað með vinnu að NEED verkefninu í tengslum við þjóðgarðinn. Verkefnisstjórn er á höndum Fræðaseturs Háskóla Íslands á Hornafirði.
Aðalmarkmið NEED er að nýta þekkingu um náttúru- og menningararf í þjóðgörðum og grannbyggðum þeirra til þess meðal annars að auka skilning á gildi þeirra og mikilvægi verndunar, efla sjálfsmynd íbúa, ekki síst barna og byggja upp atvinnustarfsemi í kringum miðlun og sölu upplýsinga um svæðin til ferðamanna.
Hérlendis stendur til að setja upp upp margvísleg tilrauna- og þróunarverkefni á hinum ýmsu starfssvæðum Vatnjökulsþjóðgarðs. Þau eiga til dæmis að snúa að nýtingu náttúruskóla við gestamiðstöðvar þjóðgarðsins til kennslu fyrir grunnskólabörn, hönnun vettvangsnámskeiða í þjóðgarðinum og nágrenni hans til að þjálfa framhaldsskóla- og háskólanema í náttúru- og umhverfisfræðum. Þá er horft til hönnunar símenntunarnámskeiða fyrir íbúa grannbyggða um náttúrufar, menningu og umhverfisvernd, sem og ráðgjafar fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu varðandi vöruþróun í fræðandi ferðaþjónustu. Nánari upplýsingar um NEED má finna á vefsíðunni www.need.is.